Risastór sekt vegna vöndlunar á enska boltanum orðin að engu

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp þann dóm að Samkeppniseftirlitið hafi ekki náð að rökstyðja háa sekt á hendur Símanum nægilega vel. Áhrifin á neytendur og markaði hafi verið lítið greind af hálfu eftirlitsins.

Tómas Þór Þórðarsson íþróttafréttamaður hefur leitt umfjöllun Símans Sport um enska boltann undanfarin ár.
Tómas Þór Þórðarsson íþróttafréttamaður hefur leitt umfjöllun Símans Sport um enska boltann undanfarin ár.
Auglýsing

Í gær urðu miklar vend­ingar í máli sem staðið hefur yfir árum saman á milli Sím­ans og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, er Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að fella skyldi niður þá 200 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sem lögð hafði verið á Sím­ann vegna meintra brota fyr­ir­tæk­is­ins gegn skil­yrðum í sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið.

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála lækk­aði sekt­ina niður í áður­nefnda upp­hæð með úrskurði þann 13. jan­úar 2021, en í maí árið 2020 hafði Sam­keppn­is­eft­ir­litið talið rétt að slengja 500 millj­óna króna sekt á Sím­ann, sem skaut mál­inu til áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar í beinu fram­haldi.

Sím­inn skaut svo mál­inu til dóm­stóla sum­arið 2021 – og nú er nið­ur­staðan kom­in: 500 millj­óna sekt­in, sem er með hærri sektum sem nokkru sinni hafa verið lagðar á í sam­keppn­is­máli á Íslandi, er orðin að engu.

Svo virð­ist að minnsta kosti vera sem stend­ur, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir á vef sínumað það hygg­ist fara ítar­lega yfir for­sendur dóms­ins og taka í fram­haldi ákvörðun um hvort mál­inu verði áfrýjað til Lands­rétt­ar. Dómur hér­aðs­dóms í mál­inu er ítar­legur og settur fram á 63 blað­síð­um.

Auglýsing

Brotið sem Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, og svo áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, töldu Sím­ann hafa framið, fólst í því að hafa farið gegn skil­málum sáttar sem félagið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2015 um að tvinna ekki saman fjar­­skipta­­þjón­­ustu og lín­u­­legri sjón­­varps­­þjón­­ustu.

Það átti Sím­inn að hafa gert með því að bjóða ólík við­­­skipta­­­kjör við sölu á enska bolt­­­anum á sjón­varps­stöð­inni Sím­­­anum Sport, eftir því hvort hann var boð­inn innan svo­kall­aðs Heim­il­i­s­­­pakka Sím­ans eða einn og sér í stakri áskrift.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið réð­ist í rann­sókn á mál­inu eftir kvörtun frá fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Sýn, sem er einn helsti keppi­nautur Sím­ans á bæði fjar­skipta- og sjón­varps­af­þreyt­ing­ar­mark­að­i.

Eftir að Sím­inn byrj­aði að sýna frá enska bolt­anum haustið 2019 hækk­aði fyr­ir­tækið verðið á bæði Heim­il­i­s­pakka sínum og sjón­varps­þjón­ust­unni Sjón­varp Sím­ans Prem­ium um þús­und krónur frá því sem áður hafði ver­ið. Neyt­endur þurftu hins vegar að greiða 4.500 krónur fyrir það eitt að vera með áskrift að fót­bolt­ar­ásum Sím­ans Sport, ef þeir voru ekki með annað hvort Heim­il­i­s­pakk­ann frá Sím­anum eða Sjón­varp Sím­ans Prem­i­um.

Sekt Sím­ans þótti ósönnuð

Í dómi hér­aðs­dóms segir að dóm­ari telji rétt að fella sekt­ina úr gildi, þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki fært við­hlít­andi rök fyrir sekt­inni á Sím­ann. Að mati dóm­ara kaus Sam­keppn­is­eft­ir­litið að „greina málið fyrst og fremst út frá orða­lagi í ákvæði sátt­ar­inn­ar, fremur en að leiða fram áhrif hátt­semi [Sím­ans] á mark­að­inn, á við­skipta­vini [Sím­ans] og keppi­nauta.“

Dóm­ar­inn taldi þannig að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ekki risið undir sönn­un­ar­byrði sinni um sekt Sím­ans svo full­nægt væri grund­vall­ar­rétt­indum sam­kvæmt 70. gr. stjórn­ar­skrár­innar (sem kveður á um að hver skuli sak­laus þar til sekt hans hafi verið sönn­uð) og 6. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu (sem kveður m.a. á um hið sama).

Við­skipta­vinum ekki settir afar­kostir um kaup á Heim­il­i­s­pakk­anum

Í dómnum er meðal ann­ars kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að með því að setja Sím­ann Sport inn Sjón­varp Sím­ans Prem­i­um, sem svo var boðið sem hluti af Heim­il­i­s­pakk­an­um, hafi Sím­inn ekki sett við­skipta­vinum afar­kosti um að kaupa áskrift af Sjón­varpi Sím­ans Prem­ium sem hluta af Heim­il­i­s­pakk­an­um.

„Við­skipta­vin­ur­inn sem hefur áhuga á hinni títt­nefndu ensku knatt­spyrnu­keppni þyrfti að greiða umtals­vert meira fyrir aðgang að efn­isveit­unni heldur en ef hann keypti efnið stakt, sem hann gerir eðli máls sam­kvæmt ekki ef hann hefur ekki áhuga á efni efn­isveit­unn­ar. Velji við­skipta­vin­ur­inn að kaupa áskrift að Sjón­varpi Sím­ans Prem­ium væri hann á hinn bóg­inn búinn að leggja í kostnað sem næmi þriðj­ungi af verði Heim­il­i­s­pakk­ans áður en hann kæm­ist í tæri við þá hags­muni sem verja eigi við­skipta­vin­inn gegn; að fjar­skipta­við­skipti yrðu skil­yrt við kaup sjón­varps­þjón­ustu sem mis­notuð væri í þessu skyni í and­stöðu við [skil­yrði sátt­ar­innar frá 2015]. Ekki verður séð að við þessar aðstæður væri raskað þeim hags­munum sem eru vernd­ar­and­lag þessa ákvæð­is,“ segir í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur.

Þar er einnig fjallað um þá við­skipta­vini sem „engan áhuga hafa á knatt­spyrnu karla í efstu deild á Englandi“ og sýn­ist dóm­ara hags­munir þeirra ekki vera sér­stak­lega vernd­aðir af skil­málum sátt­ar­innar frá 2015.

Dóm­ari bendir á að skil­yrði ákvæð­is­ins gangi í raun út á að sjón­vars­þjón­usta sé fal­boðin með því skil­yrði að fjar­skipta­þjón­usta sé keypt. „Ef við­skipta­vin­ur­inn vill ekki sjón­varps­efnið er slíku skil­yrði ekki til að dreifa þannig að fari í bága við [ákvæði sátt­ar­inn­ar]. Við­kom­andi er á engan hátt þving­aður í eitt­hvað sem hann kærir sig ekki um. Hvort hann sætti sig við að þurfa að borga hærra verð þrátt fyrir að hafa hvorki gagn né gaman af við­kom­andi sjón­varps­efni er síðan hags­muna­mat sem hann stendur frammi fyr­ir, hvort sé fjár­hags­lega hag­stæð­ara að halda áskrift­inni eða segja henni upp og leita ann­arra til­boða á mark­aði án þess að svo óæski­legt sjón­varps­efni fylg­i,“ segir í dómn­um.

Fjölgun í bæði fjar­skipta­þjón­ustu og sjón­varps­þjón­ustu

Þar er einnig farið yfir að ekk­ert liggi „fyrir um það í mál­inu að ljón séu þannig í vegi að það sé hvorki raun­hæft né mögu­legt fyrir við­skipta­vin að kaupa þjón­ustu [Sím­ans] án vöndl­un­ar, annað hvort án sjón­varps­þjón­ustu eða án fjar­skipta­þjón­ust­u,“ sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi sjálft lagt til grund­vallar að hafi haft þýð­ingu við túlkun sam­bæri­legs ákvæðis í máli sem varð­aði keppi­naut Sím­ans.

Dóm­ari segir töl­fræði­legar upp­lýs­ingar um kaup á þjón­ustu frá Sím­anum raunar tala því máli að við­skipta­vinir getið valið ýmsa kosti í þeim efnum og að í máls­skjölum komi fram að þeim sem ein­ungis keyptu fjar­skipta­þjón­ustu, sem og áskrif­endum Sjón­varps Sím­ans Premimum ein­göngu, hafi fjölg­að, en ekki ein­ungis áskrif­endum Heim­il­i­s­pakk­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnArnar Þór Ingólfsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar