„Það væri okkur Íslendingum mikill álitshnekkir að bregðast ekki fljótt og vel við“

Mývatn
Auglýsing

Félags­fundur Veiði­fé­lags Mývatns, sem hald­inn var í gær, skorar á „þartil­bær yfir­völd að beita sér fyrir auknum fjár­fram­lögum til rann­sókna og aðgerða vegna síend­ur­tek­inna áfalla í líf­ríki Mývatns og Lax­ár.“ Þetta segir í ályktun sem félags­fundur sam­þykkti, en Helgi Héð­ins­son á Geit­ar­eyj­ar­strönd sendi álykt­un­ina til fjöl­miðla í dag.

Í henni segir enn frem­ur, að frek­ari rann­sóknir á svæð­inu þoli enga bið. „Vatnið sýnir skýr ein­kenni ofauðg­un­ar. Það ástand er lítt þekkt í vötnum hér á landi en hins vegar mikið og alvar­legt vanda­mál víða erlend­is. Á síð­ustu árum hefur þör­unga­blómi (leir­los) í Mývatni auk­ist mjög mikið og líf­tími hans fram á haust­ið ­lengst. Afleið­ingin er mikil eyð­ing á botngróðri. Form­lega er við­ur­kennt að kúlu­skít­ur­inn sé út­dauður úr vatn­inu og annar gróður á hröðu und­an­haldi. Arður af sil­ungs­veiðum hef­ur eng­inn verið í mörg ár og flestum anda­teg­undum fækk­ar. Af við­brögðum inn­lendra vís­inda­manna er ljóst að rann­sóknir á þessum aukna þör­unga­blóma, or­sökum hans, afleið­ingum og hvað er til úrbóta, eru allt of skammt á veg komn­ar,“ segir í álykt­un­inn­i. 

Þá er á það minnt að Mývatn og Laxá séu vernduð með sér­lög­um. „Mý­vatn og Laxá eru vernduð með sér­lögum og voru ásamt Þjórs­ár­verum fyrstu svæðin sem Ís­lend­ingar til­nefndu á alþjóð­legan vernd­ar­lista Rams­ar. Svæðið er þekkt um allan heim sem ­nátt­úru­ger­semi sem standa beri séstakan vörð um. Það væri okkur Íslend­ingum mik­ill á­lits­hnekkir að bregð­ast ekki fljótt og vel við í þessu við­kvæma máli. ­Nauð­syn­legar rann­sóknir og aðgerðir eru dýr­ari en svo að 400 manna sam­fé­lag standi und­ir­ ­kostn­að­in­um. Því heitir Veiði­fé­lag Mývatns á Alþingi og rík­is­stjórn að axla sinn hluta á­byrgð­ar­innar og sýna að lögin um vernd Mývatns og Laxár séu meira en orðin tóm. Heima­menn þurfa aðstoð, bæði í formi fjár og fag­þekk­ingar til að mögu­leiki sé á að snú­a þess­ari óheilla­þróun við,“ segir í ályktun veiði­fé­lags­ins.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None