Sigurður Ingi telur „mjög álitlegt“ að byggja nýjan Landspítala annars staðar

Forsætisráðherra telur mjög álitlegt að byggja nýjan spítala á Vífilsstöðum. Hann segir þó að verið sé að vinna samkvæmt stefnumörkun Alþingis, sem gerir ráð fyrir uppbyggingu við Hringbraut.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að að sínu mati væri það „mjög álit­legt að byggja nýjan Land­spít­ala ann­ars stað­ar, t.d. á Víf­ils­stöð­u­m.“ Þetta segir hann í svari við fyr­ir­spurn frá Stein­grími J. Sig­fús­syni, þing­manni Vinstri grænna. 

Stein­grímur J. spurði Sig­urð Inga hvar hann áliti heppi­leg­ast að nýr Land­spít­ali rísi og hvaða for­sendur væru einkum fyrir þeirri afstöðu. Sig­urður Ingi svar­aði þess­ari spurn­ingu ekki, en sagði aðeins að „fyrir liggur stefnu­mörkun Alþingis um end­ur­nýjun og upp­bygg­ingu Land­spít­ala, sbr. þings­á­lyktun nr. 45/143. Unnið er sam­kvæmt þeirri stefnu­mörk­un.“ 

Stein­grímur J. spurði svo að ef ráð­herra teldi það koma til greina að reisa nýjan spít­ala ann­ars staðar en við Hring­braut, líkt og for­veri hans Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hvaða stað­setn­ing það væri þá og með hvaða rök­um. Sig­urður Ingi sagði aðeins að það væri að hans mati mjög álit­legt að byggja nýjan spít­ala ann­ars stað­ar, til dæmis á Víf­ils­stöð­um. Hann rök­studdi þá skoðun sína ekki. 

Auglýsing

Sig­mundur Davíð kom að minnsta kosti tví­vegis fram með þá hug­mynd að byggja nýjan Land­spít­ala ann­ars staðar en við Hring­braut eins og Alþingi hefur sam­þykkt. Í mars síð­ast­liðnum stakk hann upp á því að Víf­ils­staðir yrðu fyrir val­in­u. 

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra gagn­rýndi Fram­sókn­ar­flokk­inn harð­lega fyrir vinnu­brögðin sem við­höfð voru þá, en hann heyrði fyrst af hug­myndum for­sæt­is­ráð­herra í fjöl­miðl­um. Hann hefur sagt að það sé alveg öruggt að Land­spít­al­inn verði við Hring­braut. Alþingi hafi tekið þá ákvörðun með lögum árið 2010, og svo aftur með lögum 2013. Árið 2014 var svo gerð sér­stök álykt­un, sem Sig­urður Ingi vís­aði í í svari sínu nú. Auk þess hefur Krist­ján Þór sagt að upp­bygg­ing Land­spít­ala við Hring­braut sé þegar haf­in. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None