Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, hlyti 64,5 prósent atkvæða til embættis forseta Íslands ef kosið yrði nú, samkvæmt niðurstöðum nýjustu kosningaspárinnar sem gerð er úr fyrirliggjandi könnunum á fylgi forsetaframbjóðenda. Guðni hefur í þremur kosningaspám mælst með lang mest fylgi þeirra níu sem eru í kjöri.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, mælist með 17,6 prósent fylgi í nýjustu kosningaspánni 25. maí, rúmlega tveimur prósentustigum meira en hann var með fyrir tæpum tveimur vikum. Fylgi Davíðs hefur vaxið stöðugt í þau þrjú skipti sem kosningaspálíkaninu hefur verið beitt á forsetakannanir.
Andri Snær Magnason, rithöfundur, mælist með 10,7 prósent atkvæða. Hann hefur hæst farið í 11,4 prósent í kosningaspánni 13. maí. Halla Tómasdóttir, athafnakona, hlyti 2,8 prósent atkvæða samkvæmt nýjustu kosningaspánni. Það er örlítið meira en hún hefur mælst með hingað til.
Aðrir frambjóðendur njóta minna en eitt prósent fylgis samkvæmt nýjustu kosningaspánni. Það eru Sturla Jónsson, Elísabet Jökulsdóttir, Ástþór Magnússon, Hildur Þórðardóttir og Guðrún Margrét Pálsdóttir. Fréttastofa 365 hefur boðað úrslit úr könnun sinni á fylgi frambjóðenda í dag. Sú könnun mun ráða því hverjir hljóta þátttökurétt í kappræðum frambjóðenda á sömu sjónvarpsstöð í kvöld og þurfa frambjóðendur að mælast með meira en 2,5 prósent fylgi til að fá að birtast á skjánum.
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar er gerð í fyrsta sinn fyrir forsetakosningar. Kjarninn hefur áður birt niðurstöður kosningaspálíkansins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014 fyrir fylgi framboða í Reykjavík. Þá verða niðurstöður líkansins um fylgi stjórnmálaflokka í fyrirhuguðum Alþingiskosningum birtar á vef Kjarnans í aðdraganda kosninganna í haust. Í nýjustu kosningaspánni fyrir forsetakosningarnar eru nýjustu kannanirnar vegnar:
- Skoðanakönnun Gallup fyrir stuðningsmenn Davíðs Oddssonar 19. til 25. maí (vægi 25,3%)
- Skoðanakönnun MMR 12. til 20. maí (vægi 24,4%)
- Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 14. maí (vægi 14,5%)
- Skoðanakönnun Maskínu 10. til 13. maí (vægi 19,3%)
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 9. maí (vægi 16,4%)
Hvað er kosningaspáin?
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Kjarninn birti Kosningaspá Baldurs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og reyndist sú tilraun vel. Á vefnum kosningaspá.is má lesa niðurstöður þeirrar spár og hvernig vægi kannana var í takt við frávik kannana miðað við kosningaúrslitin.
Áreiðanleiki könnunaraðila er reiknaður út frá sögulegum skoðanakönnunum og kosningaúrslitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könnunin var framkvæmd og svo hversu margir svara í könnununum.