Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, hlyti örugga kosningu í embætti forseta Íslands ef kosið yrði nú samkvæmt kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar. Guðni mundi fá 62,8 prósent atkvæðanna. Í dag er réttur mánuður í að kosið verður þann 25. júní. Stuðningur við Guðna hefur minnkað um rúmlega fimm prósentustig síðan fyrsta kosningaspáin var gerð úr fyrirliggjandi könnunum um miðjan maí mánuð.
Fylgi við Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins, heldur áfram að aukast í kosningaspánni og mælist nú með 19 prósent fylgi. Hann er sá frambjóðandi sem hefur vaxið mest í þau fjögur skipti sem kosningaspáin hefur verið unnin úr fyrirliggjandi könnunum á fylgi frambjóðenda í embætti forseta Íslands.
Andri Snær Magnason, rithöfundur, heldur nokkuð stöðugu flugi í rúmu 10 prósent fylgi; mælist nú með 10,7 prósent. Halla Tómasdóttir, athafnakona, fengi 3,3 prósent atkvæða samkvæmt kosningaspánni. Aðrir frambjóðendur fengju minna. Það eru Sturla Jónsson, Elísabet Jökulsdóttir, Ástþór Magnússon, Hildur Þórðardóttir og Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar er gerð í fyrsta sinn fyrir forsetakosningar. Kjarninn hefur áður birt niðurstöður kosningaspálíkansins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014 fyrir fylgi framboða í Reykjavík. Þá verða niðurstöður líkansins um fylgi stjórnmálaflokka í fyrirhuguðum Alþingiskosningum birtar á vef Kjarnans í aðdraganda kosninganna í haust. Í nýjustu kosningaspánni fyrir forsetakosningarnar (gerð 25. maí) eru nýjustu kannanirnar vegnar:
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 23. til 24. maí (vægi 14,4%)
- Skoðanakönnun Gallup fyrir stuðningsmenn Davíðs Oddssonar 19. til 25. maí (vægi 21,6%)
- Skoðanakönnun MMR 12. til 20. maí (vægi 16,0%)
- Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 14. maí (vægi 8,6%)
- Skoðanakönnun Maskínu 10. til 13. maí (vægi 11,9%)
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 9. maí (vægi 9,7%)
Hvað er kosningaspáin?
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Kjarninn birti Kosningaspá Baldurs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og reyndist sú tilraun vel. Á vefnum kosningaspá.is má lesa niðurstöður þeirrar spár og hvernig vægi kannana var í takt við frávik kannana miðað við kosningaúrslitin.
Áreiðanleiki könnunaraðila er reiknaður út frá sögulegum skoðanakönnunum og kosningaúrslitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könnunin var framkvæmd og svo hversu margir svara í könnununum.