Halla Tómasdóttir, athafnakona, nýtur stuðnings 8,7 prósent kjósenda samkvæmt nýjustu kosningaspánni sem unnin var í dag úr fyrirliggjandi könnunum á fylgi forsetaframbjóðenda. Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, stendur í stað og mælist með 57 prósent fylgi og er sem fyrr lang vinsælasti frambjóðandinn.
Halla hefur vaxið í hverri kosningaspá sem gerð hefur verið síðan um miðjan síðasta mánuð, alveg síðan hún mældist með rétt tæplega 2 prósent 14. maí og þar til nú þegar hún mælist með 8,7 prósent í kosningaspánni. Aðeins þrír njóta meiri stuðnings í embætti forseta Íslands; Guðni, Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Andri Snær Magnason, rithöfundur.
Davíð hefur fatast flugið undanfarna daga og mælist með 18,6 prósent fylgi í nýjustu kosningaspánni. Hann hefur mest mælst með 20,3 prósent um mánaðarmót maí og júní. Andri Snær hefur mælst með rúmlega 11 prósent fylgi nær stöðugt undanfarinn mánuð eða síðan kosningaspáin var gerð fyrst fyrir forsetakosningarnar. Andri mælist nú með stuðning 11,1 prósent kjósenda.
Sturla Jónsson, bílstjóri, mælist einnig með álíka mikið fylgi og síðast; 2,3 prósent kjósenda styðja framboð hans. Aðrir frambjóðendur myndu fá minna ef kosið yrði nú. Ástþór Magnússon fengi 1 prósent, Elísabet Jökulsdóttir fengi 0,7 prósent, Hildur Þórðardóttir fengi 0,2 prósent og Guðrún Margrét Pálsdóttir fengi 0,4 prósent atkvæða.
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar er gerð í fyrsta sinn fyrir forsetakosningar. Kjarninn hefur áður birt niðurstöður kosningaspálíkansins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014 fyrir fylgi framboða í Reykjavík. Þá verða niðurstöður líkansins um fylgi stjórnmálaflokka í fyrirhuguðum alþingiskosningum birtar á vef Kjarnans í aðdraganda kosninganna í haust. Í nýjustu kosningaspánni fyrir forsetakosningarnar eru nýjustu kannanirnar vegnar:
- Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 8. til 12. júní (vægi 22,2%)
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 6. júní (vægi 14,5%)
- Skoðanakönnun Gallup 26. maí - 3. júní (vægi 23,6%)
- Skoðanakönnun Frélagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 1. til 2. júní (vægi 14,3%)
- Skoðanakönnun MMR 26. maí til 2. júní (vægi 15,0%)
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 30. maí (vægi 10,4%)
Hvað er kosningaspáin?
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Kjarninn birti Kosningaspá Baldurs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og reyndist sú tilraun vel. Á vefnum kosningaspá.is má lesa niðurstöður þeirrar spár og hvernig vægi kannana var í takt við frávik kannana miðað við kosningaúrslitin.
Áreiðanleiki könnunaraðila er reiknaður út frá sögulegum skoðanakönnunum og kosningaúrslitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könnunin var framkvæmd og svo hversu margir svara í könnununum.