„Neyðarbrautinni“ hefur verið endanlega lokað

„Þristinum“ hefur verið lagt við enda neyðarbrautarinnar svokölluðu. Ekki þarf að færa vélina aftur vegna þess að flugbrautin þarf að fara í notkun því henni hefur verið lokað endanlega.
„Þristinum“ hefur verið lagt við enda neyðarbrautarinnar svokölluðu. Ekki þarf að færa vélina aftur vegna þess að flugbrautin þarf að fara í notkun því henni hefur verið lokað endanlega.
Auglýsing

Isa­via hefur lokað norð­aust­ur-suð­vestur flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli sam­kvæmt fyr­ir­mælum frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu í kjöl­far dóms Hæsta­réttar um málið. Isa­via hefur sent inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og Reykja­vík­ur­borg stað­fest­ingu á þessu. Sam­göngu­stofu hefur verið falið að end­ur­skoða skipu­lag Reykja­vík­ur­flug­vallar í kjöl­far lok­un­ar­innar í sam­ræmi við lög um loft­ferð­ir.

Fyr­ir­mæli ráðu­neyt­is­ins og stað­fest­ing Isa­via á lok­un­inni voru send 30. júní. Í skila­boðum sem flug­mönnum er skylt að skoða áður en farið er um flug­völl­inn, kemur fram að flug­braut­inni hafi verið lokað end­an­lega. Skila­boðin um end­an­lega lok­un, svokölluð NOTAM, eru dag­sett 4. júlí.

Auglýsing

Kjarn­inn greindi frá því á dög­unum að flug­braut­inni, sem í umræð­unni um lokun flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri hefur hlotið heitið „neyð­ar­braut­in“, hafi verið lokað í allt sum­ar, eða þar til 15. sept­em­ber. Ástæðan hafi ekki verið að beiðni ráðu­neyt­is­ins heldur vegna þess hversu lítið brautin er notuð á sumr­in. Dou­glas DC3-flug­vél Icelandair hafi þess vegna verið lagt við braut­ar­end­ann í norðri þar sem fram­kvæmdir eru hafnar við fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu íbúða­hverfis í Vatns­mýr­inni.

Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum dóm hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu væri skylt að loka flug­braut­inni í sam­ræmi við sam­komu­lag sem Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi ráð­herra flug­mála, gerði við Reykja­vík­ur­borg haustið 2013. Þar var því lofað að flug­braut­inni yrði lok­að. Reykja­vík­ur­borg réðst í kjöl­farið í upp­bygg­ingu íbúða­hverfis við nyrðri enda braut­ar­inn­ar. Þegar Ólöf Nor­dal sett­ist svo í stól inn­an­rík­is­ráð­herra var ákvörð­un­inni um lokun flug­braut­ar­innar snúið við. Reykja­vík­ur­borg höfð­aði þá mál við ríkið sem hæsti­réttur hefur dæmt í eins og áður seg­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None