Seðlabankinn lætur skoða aflandsfélagaviðskipti Finns og Helga

selabankinn_15367564864_o.jpg
Auglýsing

Banka­ráð Seðla­banka Íslands hefur falið lög­fræð­ingum bank­ans að kanna tengsl aflands­fé­laga­við­skipta Finns Ing­ólfs­son­ar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, og Helga S. Guð­munds­son­ar, fyrr­ver­andi for­manns banka­ráðs Seðla­banka Íslands, við störf þeirra hjá bank­an­um. Þetta gerði banka­ráðið dag­inn eftir að Kast­ljós, í sam­starfi við Reykja­vík Media, greindi frá aflands­fé­laga­við­skiptum þeirra. RÚV greinir frá



Í frétt RÚV sagði einnig að banka­ráðið hafiu sam­þykkt ein­róma að óska eftir umsögn frá Seðla­bank­anum um hvort menn­irnir tveir hefðu upp­lýst bank­ann um aflands­við­skipti sín, hvort ein­hverjar reglur hefðu verið í gildi um slík við­skipti stjórn­enda bank­ans og þá hvort ástæða væri til við­bragða. Nið­ur­staða liggur ekki fyr­ir.

Auglýsing

Kast­ljós greindi frá því 25. apríl síð­ast­lið­inn að Finnur, sem var vara­­for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, ­þing­­maður við­­skipta­ráð­herra og síðar Seðla­­banka­­stjóri, hafi átt ýmis kon­ar ­per­­són­u­­leg við­­skipti í gegnum aflands­­fé­lög. Þau átti hann ásamt félaga sín­um, Helga S. Guð­­munds­­syni, sem Finnur skip­aði meðal ann­­ars for­­mann banka­ráðs Lands­­banka Íslands á meðan að hann var ráð­herra banka­­mála. Síð­­­ar, árið 2003, var Helgi skip­aður í banka­ráð Seðla­­banka Íslands, þar sem hann sat til árs­ins 2008. Helgi, sem nú er lát­inn, var meðal ann­­ars for­­maður banka­ráðs Seðla­­banka Ís­lands frá árinu 2006 og fram á árið 2007. Hann var auk þess áhrifa­­maður í S-hópnum svo­­kall­aða, sem keypti hlut íslenska rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í banka­einka­væð­ing­unni árið 2002. VÍS, sem Finnur stýrði á þeim tíma, var einnig hluti af S-hópn­­um.

Í gögnum Mossack Fon­­seca kom meðal ann­­ars fram að Finnur og Helgi hafi eign­­ast félag í Panama í byrj­­un ­febr­­úar 2007, á meðan að Helgi var enn for­­maður banka­ráðs Seðla­­banka Íslands­. ­Fé­lagið hét Adair SA. Í Kast­­ljósi kom fram að til­­­gangur félags­­ins væri að kaupa og eiga hluta­bréf í Lands­­bank­an­um, sem Lands­­bank­inn hafði lánað fyr­­ir. Finn­ur ­sagði í skrif­­legu svari til Kast­­ljóss að til­­­gangur félags­­ins hefði ver­ið fjár­­­fest­ing­­ar. Það hefði tapað miklu og því hefðu aldrei orðið til tekjur í fé­lag­inu. Ef þær hefðu orðið þá hefði félagið greitt skatt í Panama en eig­end­ur þess fjár­­­magnstekju­skatt á Íslandi ef þeir hefðu fengið eitt­hvað út úr því.

Kast­­ljós greindi einnig frá til­­­urð félags­­ins Lozanne Inc. í Pana­ma, sem skráð var í eigu Finns. Engar frek­­ari upp­­lýs­ingar fund­ust um ­fé­lagið og Finnur kann­að­ist ekki við það þegar leitað var upp­­lýs­inga hjá hon­um um það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None