Hreyfingarleysi kostar átta þúsund milljarða á ári

fita feitt feitur feit offita
Auglýsing

Heil­brigð­is­vanda­mál sem verða til vegna hreyf­ing­ar­leysis kosta heim­inn að minnsta kosta 67,5 millj­arða Banda­ríkja­dala á ári, eða sem sam­svarar rúm­lega átta þús­und millj­örðum íslenskra króna. 

Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar sem birt­ist í hinu virta Lancet lækna­tíma­riti í gær. Tíma­ritið gefur nú út sér­staka greina­röð um hreyf­ingu og hreyf­ing­ar­leysi til þess meðal ann­ars að hvetja ráða­menn til þess að gera gang­skör í hreyf­ingu. Án mik­illa breyt­inga munu mark­mið Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar um 10 pró­senta minnkun hreyf­ing­ar­leysis fyrir árið 2025 ekki ganga eft­ir. 

Rann­sóknin á kostn­aði heilsu­far­s­vanda­mál­anna byggir á gögnum frá 142 ríkjum sem hýsa 93% allrar heims­byggð­ar­inn­ar. Upp­hæð­in, 67,5 millj­arðar dala, átti við um árið 2013. Kostn­að­ur­inn skipt­ist þannig að 53,8 millj­arðar fóru í heil­brigð­is­þjón­ustu og 13,7 millj­arðar komu til vegna lélegri fram­leiðn­i. 

Auglýsing

Rann­sak­end­urnir segja hins vegar að upp­hæðin sé lík­lega van­met­in, þar sem aðeins var skoð­aður kostn­aður við fimm sjúk­dóma, hjarta- og æða­sjúk­dóma, syk­ur­sýki 2, brjósta- og ristil­krabba­mein. Þetta eru því lík­lega mjög hóf­legar áætl­anir að mati rann­sak­enda. 

Þetta er í fyrsta skipti sem reynt er að meta kostn­að­inn við far­aldur hreyf­ing­ar­leys­is, en hreyf­ing­ar­leysi er talið tengj­ast fimm millj­ónum dauðs­falla með beinum hætti á hverju ári. 

Klukku­tími á dag fyrir kyrr­setu­fólk 

Fólk sem vinnur kyrr­setu­störf og situr við í átta klukku­stundir á dag getur jafnað út slæm áhrif þess á heils­una með klukku­stundar hreyf­ingu á dag, sam­kvæmt annarri rann­sókn í greina­röð Lancet, sem byggði á gögnum úr sextán rann­sóknum á um milljón ein­stak­ling­um. 

Sam­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni á fólk að hreyfa sig í 150 mín­útur á viku en nýja rann­sóknin bendir til þess að fyrir marga sé það ekki nóg. 

„Þú þarft ekki að stunda íþrótt­ir, þú þarft ekki að fara í rækt­inga. Það er í lagi að ganga rösk­lega, jafn­vel á morgn­anna, í hádeg­inu, eftir kvöld­mat. Þú getur skipt þessu upp yfir dag­inn, en þú verður að gera þetta í minnst eina klukku­stund,“ segir pró­fess­or­inn Ulf Ekelund, sem leiddi rann­sókn­ina, við Guar­dian. Hann við­ur­kenndi að oft væri þetta erfitt fyrir fólk. „Það er ekki auð­velt að stunda hreyf­ingu í klukku­tíma á dag en... með­al­sjón­varps­á­horf full­orð­inna í Bret­landi í dag eru þrjár klukku­stundir og sex mín­útur eða eitt­hvað slíkt, yfir þrír klukku­tím­ar. Ég veit ekki hvort það er til of mik­ils ætl­ast að aðeins hluti þess­ara þriggja klukku­tíma fari í lík­am­lega hreyf­ing­u.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None