Össur og Bjarni efstir í prófkjörum – Engin sjálfstæðiskona í efstu fjórum í SV-kjördæmi

Össur Skarphéðinsson og Bjarni Benediktsson.
Össur Skarphéðinsson og Bjarni Benediktsson.
Auglýsing

Össur Skarp­héð­ins­son þing­maður varð efstur í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Úrslitin voru til­kynnt núna í kvöld. Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir þing­maður varð í öðru sæti, Eva Bald­urs­dóttir lög­fræð­ingur í því þriðja og Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í fjórða sæti. Athygli vekur að Val­gerður Bjarna­dóttir þing­maður varð ekki meðal efstu fjög­urra. Össur og Sig­ríður Ingi­björg munu því leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sitt­hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í Alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber.

Fyrstu tölur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi voru kynntar í kvöld­frétta­tíma RÚV. Fjögur efstu sætin verða skipuð körl­um. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, var efstur þegar búið var að telja 1.008 atkvæði af 3.154 greiddum atkvæð­um. Bjarni lýsti yfir von­brigðum með að vera ekki með konu ofar­lega á list­an­um. Hann segir flokk­inn þurfa að kanna það hvernig Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti komið því skýrt til kynna að flokk­ur­inn ætli konur og karla jafnan hlut.

Jón Gunn­ars­son þing­maður var í öðru sæti, Óli Björn Kára­son rit­stjóri í þriðja sæti og Vil­hjálmur Bjarna­son þing­maður var í því fjórða. Karen Elísa­bet Hall­dórs­dóttir er efsta konan á list­anum og Bryn­dís Har­alds­dóttir kemur á hæla hennar í sjötta sæti. Athygli vakti að Elín Hirst þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu var ekki á meðal sex efstu. Hún sagði nið­ur­stöð­una vera von­brigði.

Auglýsing

Þrjú önnur próf­kjör fóru fram í dag. Sam­fylk­ingin hélt einnig próf­kjör í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hélt einnig próf­kjör í Suð­ur­kjör­dæmi. Nið­ur­staðna úr öllum próf­kjör­unum er að vænta í kvöld.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None