Guðlaugur Þór biðst afsökunar á orðalagi í skýrslunni

ingsetning-2014_15084005597_o.jpg
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, hefur beðist afsök­unar á því að orða­lag í skýrsl­unni „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“ sé þannig að hægt sé að skilja það sem „árásir eða gagn­rýni á emb­ætt­is­menn og sér­fræð­inga sem komu að málum og sinntu verkum sínum af sam­visku­sem­i“. Hann boðar einnig að orða­lag skýrsl­unnar verði end­ur­skoð­að. „Gild­is­hlaðin orð eða annað sem valdið getur mis­skiln­ingi fjar­lægt þannig að efn­is­leg umræða fari fram,“ segir Guð­laugur Þór í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag. Aldrei hafi verið ætlun meiri­hluta fjár­laga­nefndar að vega að starfs­heiðri ein­stak­linga sem eiga ekki annað skilið en þakkir fyrir sín störf.

Fjöl­margar ásak­anir eru settar fram í skýrsl­unni. Í henni seg­ir  að rík­­is­­stjórn Jóhönnu Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, og sér­­stak­­lega fjár­­­mála­ráðu­­neytið undir stjórn Stein­gríms J. Sig­­fús­­son­­ar, í sam­­starfi við emb­ætt­is­­menn og Seðla­­banka Íslands, hafi ákveðið að hefja aðför gegn neyð­­ar­lög­unum í febr­­úar 2009 með það að mark­miði að færa kröf­u­höfum föllnu bank­anna betri end­­ur­heimt­­ir. Í þess­­ari aðför var ákveðið að hundsa þau drög að stof­­nefna­hags­­reikn­ingum nýju bank­anna þriggja sem birt voru á heima­­síðu Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins (FME) 14. nóv­­em­ber 2008. Í skýrsl­unni er síðan reiknað út að rík­­is­­sjóður hafi tekið á sig 296 millj­­arða króna í áhættu í þágu kröf­u­hafa með þessum aðgerð­­um.

Auglýsing


Í frétta­til­kynn­ingu vegna útkomu skýrsl­unnar sagði að skýrslan taki „af allan vafa um áhættu skatt­greið­enda sem átti sér stað við afhend­ingu bank­anna til kröf­u­hafa.[...]Ekki verður önnur ályktun dregin en að samn­inga­­gerðin afi að stórum hluta gengið út á að frið­­þægja kröf­u­haf­ana með því að afhenda þeim eign­­ar­hald á bönk­­un­­um.“

Þeim ásök­unum sem settar eru fram í skýrsl­unni hefur verið ítrekað verið hafnað af þeim ein­stak­l­ingum sem þær bein­­ast að, þeim stofn­unum sem komu að mál­inu og í áliti sem unnið var fyrir stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd fyrir rúmu einu og hálfu ári síð­­­an.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una í frétta­skýr­ingu á þriðju­dag.

Vill að óháðir sér­fræð­ingar fari yfir málið

Skýrslan er skrifuð í nafni meiri­hluta fjár­laga­nefndar en Guð­laugur Þór og Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, höfðu veg og vanda að gerð henn­ar. Þau kynntu einnig til­urð hennar á blaða­manna­fundi á mánu­dag. Þar fékkst ekki upp­gefið hver hefði skrifað skýrsl­una né hverjir hefðu komið að gerð henn­ar. Guð­laugur Þór og Vig­dís greindu hins vegar frá því að þau hafi greitt 90 þús­und króna kostnað vegna skýrslu­gerð­ar­innar úr eigin vasa. Það er for­dæma­laust sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu Alþingis að nefnd­ar­menn geri slíkt. 

Í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag segir Guð­laugur Þór að hann telji nauð­syn­legt að óháðir sér­fræð­ingar verði fengnir til að rann­saka allar hliðar á einka­væð­ingu bank­anna,samn­inga stjórn­valda og kröfu­hafa föllnu bank­anna, sam­hliða því að upp­lýst verði hvernig staðið var að skulda­upp­gjöri ein­stak­linga og fyr­ir­tækja í kjöl­far hruns­ins.

„Skýrsla sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði fram [Einaka­væð­ing bank­anna hin síð­ari og fylgi­skjöl] er rök­stuðn­ingur fyrir því að slík rann­sókn fari fram. Aðeins þannig verður málið upp­lýst og tor­tryggni sem fengið hefur að grafa um sig meðal almenn­ings og for­ráða­manna fyr­ir­tækja, eytt.

Umræða um skýrsl­una hefur verið um form hennar en ekki efni. Þetta er miður enda ljóst að mik­il­vægar nýjar upp­lýs­ingar koma fram í skýrsl­unni og ekki síst á 140 blað­síðum með fylgi­skjöl­um, sem nær öll koma nú fyrir sjónir almenn­ings í fyrsta skipti.

Við höfum fengið ábend­ingar um að orða­lag í skýrsl­unni sé þannig að hægt sé að skilja það sem árásir eða gagn­rýni á emb­ætt­is­menn og sér­fræð­inga sem komu að málum og sinntu verkum sínum af sam­visku­semi. Það var aldrei ætlun meiri­hluta fjár­laga­nefndar að vega að starfs­heiðri ein­stak­linga sem eiga ekki annað skilið en þakkir fyrir sín störf. Það er rétt og skylt að biðj­ast vel­virð­ingar á slíkum mis­tök­um. Í þessu ljósi verður orða­lag skýrsl­unnar end­ur­skoð­að. Gild­is­hlaðin orð eða annað sem valdið getur mis­skiln­ingi fjar­lægt þannig að efn­is­leg umræða fari fram.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None