Árni Páll íhugar að kvarta til ÖSE

Þingmaður Samfylkingarinnar telur ótækt að ríkisstjórnarflokkarnir haldi áfram kosningabaráttu á meðan minnihlutinn sinnir þingstörfum.

Árni Páll Árnason
Auglýsing

Árni Páll Árna­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að það komi til greina að kvarta til Örygg­is- og sam­vinnu­stofn­unar Evr­ópu (ÖSE) ef rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir halda áfram kosn­inga­bar­áttu á meðan minni­hlut­inn sinnir þing­störf­um. 

Hann segir stjórn­ar­meiri­hlut­ann ekki sinna laga­skyldum sínum um að vera í þing­inu, heldur sé hann að heyja kosn­inga­bar­áttu, á meðan að stjórn­ar­and­staðan sé bundin þar. Þessi staða skekki sam­keppni þeirra á milli í aðdrag­anda kosn­inga. „Stjórn­ar­flokkar sem halda þing­inu áfram þrátt fyrir að starfs­á­ætlun sé búin, hirða ekki um að sinna laga­skyldum um að vera sjálfir í þing­inu, til þess eins að hafa áhrif á mögu­leika stjórn­ar­and­stöðu til að fara í kosn­inga­bar­áttu, þeir eru ekki að upp­fylla lýð­ræð­is­legar grund­vall­ar­regl­ur[...]Ef menn sjá ekki hvers konar rugl er hér í gangi þá blasir það við að við verðum að biðja ÖSE um að senda hingað kosn­inga­eft­ir­lit sam­bæri­legt því sem þekk­ist í löndum sem við viljum helst ekki bera okkur saman við.“ Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Engin lausn í sjón­máli

Engin nið­ur­staða liggur fyrir um þing­lok og mörg stór mál bíða enn afgreiðslu. Kosn­ingar fara fram laug­ar­dag­inn 29. októ­ber. Rík­is­stjórnin fund­aði með stjórn­ar­and­stöðu­leið­togum í gær­morgun þar sem þess var kraf­ist að samn­ingum yrði lokið þann dag­inn.

Auglýsing

Rík­is­stjórnin fund­aði síðan sjálf í gær um málið án þess að það orðið til þess að lausn lægi fyrir og því hefur verið boðað aftur til þing­fundar í dag. 

Rang­heiður Rík­harðs­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir við Morg­un­blaðið að hún hafi fulla trú á því að for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar ljúki við­ræðum við stjórn­ar­and­stöð­una um þau mál sem skipti máli fyrir þjóð­ina að klára nún­a. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None