Hillary: Þetta er sársaukafullt og verður það lengi

Hillary Clinton
Auglýsing

Hill­ary Clint­on, for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins, seg­ist von­ast til þess að Don­ald Trump, verð­andi for­seti Banda­ríkj­anna, verði far­sæll for­seti. Hún segir úrslitin í for­seta­kosn­ing­unum í gær ekki hafa verið þau sem hún hefði von­ast eftir eða vilj­að, og henni þyki það leitt að hafa tap­að. 

„Ég veit hversu von­svikin þið eruð af því að ég er það lík­a,“ sagði hún meðal ann­ars við stuðn­ings­menn sína í fyrstu ræð­unni eftir að ljóst varð að hún tap­aði for­seta­kosn­ing­un­um. „Þetta er sárs­auka­fullt og það mun vera það um langa hríð.“ Veru­leik­inn væri sá að Trump yrði for­seti og það þyrfti að gefa honum tæki­færi til að sanna sig. 

Clinton lagði áherslu á gildin sem hún og Demókra­ta­flokk­ur­inn stæðu fyr­ir, frelsi og jafn­rétti. Það þyrfti að gera allt til að tryggja jöfn rétt­indi og vernda þyrfti landið og líka alla jörð­ina. Nú væri það skylda þeirra sem borg­ara að gera sitt til að byggja sterk­ari og rétt­lát­ari Banda­ríki. „Við trúum því að banda­ríski draum­ur­inn sé nógu stór fyrir alla.“ Karla og kon­ur, fólk af ólíkum kyn­þátt­um, með ólíkar kyn­hneigðir og svo fram­veg­is. 

Auglýsing

„Ég er stolt og þakk­lát fyrir þessa frá­bæru kosn­inga­bar­áttu sem við háðum sam­an. Þið eruð dæmi um það besta í Banda­ríkj­unum og að vera ykkar fram­bjóð­andi er ein­hver mesti heiður sem mér hefur hlotn­ast í líf­in­u.“  

Clinton sagði einnig að bar­áttan hafi aldrei snú­ist um eina mann­eskju eða einar kosn­ing­ar, heldur um gildi Banda­ríkj­anna. Það hafi komið í ljós að banda­ríska þjóðin sé enn klofn­ari en hún og hennar fólk hafi hald­ið. 

Hún þakk­aði fjöl­skyldu sinni og vara­for­seta­efni sínu, og öllu sínu teymi og stuðn­ings­mönn­um. Þá þakk­aði hún for­seta­hjón­unum Barack og Michelle Obama fyrir þeirra störf í átta ár. „Landið okkar stendur í mik­illi þakk­ar­skuld við ykk­ur.“ Hún tal­aði sér­stak­lega til ungs fólks og kvenna. Hún sagð­ist hafa varið öllu sínu lífi í bar­áttu fyrir betri heimi og því fylgdu bæði sigrar og töp. „Þetta er sárs­auka­fullt, en gerið það, aldrei hætta að trúa því að bar­áttan fyrir því sem er rétt sé þess virð­i.“ 

Við konur sagði hún að ekk­ert hefði gert hana stolt­ari en að vera full­trúi þeirra og braut­ryðj­andi. „Ég veit að við erum ekki búnar að brjóta þetta hæsta gler­þak í heimi, en ein­hvern tím­ann ger­ist það og von­andi fyrr en seinna.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None