Lilja svarar hvorki af né á varðandi formannsframboð

Varaformaður Framsóknarflokksins vill ekki gefa upp hvort hún sækist eftir formannsstólnum á komandi flokksþingi. Hún segir að allur árangur í málefnum þrotabúa föllnu bankanna hafi verið Framsóknarflokknum að þakka.

7DM_0632_raw_2179.JPG
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir ekki tíma­bært að svara því hvort hún muni bjóða sig fram til for­manns flokks­ins á næsta flokks­þingi, sem haldið verður í síð­asta lagi í jan­úar næst­kom­andi. Hún muni kanna stuðn­ing sinn og bak­land. „Ég á bara eftir að fara yfir það og kanna hver staða mín er innan flokks­ins.“ Þetta kom fram í máli hennar í Silfr­inu í dag.

Hún sagði enn fremur að sá árangur sem náð­ist í lausn á mál­efnum þrota­búa föllnu bank­anna á síð­asta kjör­tíma­bili hafi verið vegna Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann hafi teiknað upp leið­ina sem hafi verið farin í því ferli, sett upp stöð­ug­leika­skil­yrðin og hannað hinn svo­kall­aða stöð­ug­leika­skatt, sem ekki reyndi á á end­an­um. Lilja segir að ekk­ert af þessu hefði gerst nema fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Ískalt milli for­manns og fyrr­ver­andi for­manns

Miklar deilur hafa verið í Fram­sókn­ar­flokknum und­an­farin miss­eri, eða allt frá því að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þurfti að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Wintris-­máls­ins í byrjun apríl 2016. Opin­berað hefur verið að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins var búinn að taka ákvörðun um að setja Sig­mund Davíð af sem for­sæt­is­ráð­herra á þing­flokks­fundi 5. apríl 2016. Ástæðan var trún­­að­­ar­brestur milli þing­­flokks­ins og Sig­­mundar Dav­­íðs vegna Wintris-­­máls­ins og eft­ir­­mála þess. Opin­ber­­lega var greint frá mál­inu á þann veg að Sig­­mundur Davíð hefði sjálfur lagt fram til­­lögu um að stíga til hlið­­ar, en ekk­ert sagt frá því að þing­­flokk­­ur­inn hafi verið búinn að taka þá ákvörðun fyrir hann.

Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sem tók við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu, felldi síðan Sig­mund Davíð í for­manns­kjöri í byrjun októ­ber 2016 á hádramat­ískan hátt. Síðan þá hefur ekki gróið um heilt milli stríð­andi fylk­inga í flokknum og ísköldu andar enn milli Sig­mundar Dav­íðs og Sig­urðar Inga.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn beið afhroð í síð­ustu þing­kosn­ingum og fékk sína verstu kosn­ingu í 100 ára sögu flokks­ins. Fylgi flokks­ins hefur ekki auk­ist að neinu ráði sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum það sem af er þessu kjör­tíma­bili.

Sig­mundur Davíð vill ekki svara því hvort hann fari í for­manns­fram­boð

Í gær fór fram vor­fundur Fram­sókn­ar­flokks­ins þar sem fylk­ingar ann­­ars vegar sitj­andi for­­mann og hins vegar fyrr­ver­andi for­­mann tók­ust á.

Sig­­urður Ingi hélt ræðu við upp­­haf fundar og kall­aði eftir meiri sam­­stöðu í þing­­flokki Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins. Hann gagn­rýndi þá sem hefðu gagn­rýnt nið­­ur­­stöðu síð­­asta flokks­­þings, þegar Sig­­urður Ingi felldi Sig­­mund Davíð úr for­­manns­stóli. Hollt og gott væri að flokks­­menn væru ósam­­mála og að þeir rök­ræddu um mál­in, en ákvörðun sé þó alltaf tekin með lýð­ræð­is­­legum hætti á end­­anum og það verði að virða.

Sam­­kvæmt end­­ur­­sögn RÚV úr ræðu Sig­­urðar Inga sagði hann svo: „ En það virð­ist ekki öllum gefið að geta sætt sig við það sem  flokks­­menn ákveða með lýð­ræð­is­­legum aðferð­­um. Í Morg­un­­blað­inu í gær mátti lesa hvaða augum sumir líta flokk­inn okkar og ákvarð­­anir okkar flokks­­manna. Þar segir ein­hver að rán hafi átt sér stað í haust og þeir, sem á að hafa verið rænt frá, fyr­ir­­gefi ekki slíkan gjörn­ing, ekki núna, ekki seinna! Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hefur verið við­haft af minna til­­efni. Það sem ég spyr mig að er; er þetta sam­vinn­u­­maður sem talar svona,  þetta er ekki  sér­­­lega fram­­sókn­­ar­­leg nálg­un? Og hvaða fyr­ir­­gefn­ingu er verið að tala um, við hvern á að segja „sor­rí“? Hin almenna fram­­sókn­­ar­­mann, meiri­hluta full­­trúa á flokks­­þingi? Á flokks­­þingi í haust var tek­ist á. Svo virð­ist sem sumir líti á nið­­ur­­stöðu þess þings sem ein­hvers konar svik við hluta flokks­ins. Það er að segja, að meiri­hlut­inn hafi svikið minn­i­hlut­ann. Og nú sé bara spurn­ingin hvenær þau svik verði leið­rétt.“

Sig­­mundur Davíð sagði við RÚV að honum hafi þótt ræða Sig­­urðar Inga „ekk­ert sér­­­stök“. Það væri ekki búið að gera upp það sem hefði átt sér stað á síð­­asta flokks­­þingi og það hafi áhrif á sam­­bandið milli hans og sitj­andi for­­manns. Mið­­stjórn­­­ar­fund­­ur­inn sam­­þykkti að halda flokks­­þing í jan­úar næst­kom­andi og sagði Sig­­mundur Davíð það vera „sig­­ur“. Hann vildi ekki svara því með afger­andi hætti hvort hann myndi bjóða sig fram til for­­manns á ný á því flokks­­þingi. „Ég ætla að meta það hvernig málin þró­­ast næstu mis­s­er­in,“ sagði Sig­­mundur Davíð við RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent