Hæstiréttur vísar Stím-málinu aftur í hérað vegna vanhæfis

Hæstiréttur Íslands hefur ómerkt dóm héraðsdóms í Stím-málinu vegna tengsla héraðsdómara við Glitnismenn. Þetta er þriðja hrunmálið sem þarf að endurtaka vegna vanhæfis.

Hæstiréttur
Auglýsing

Hæsti­réttur Íslands hefur ómerkt dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í Stím-­mál­inu vegna van­hæfis dóm­ara, Sig­ríðar Hjalte­sted. Því þarf að end­ur­flytja málið fyrir hér­aðs­dómi. 

Þetta er þriðja hrun­málið sem þarf að end­ur­taka sökum van­hæfis dóm­ara, að því er fram kemur á vef RÚV. Lárus Weld­ing var dæmdur í fimm ára fang­elsi í mál­inu og Jóhannes Bald­urs­son og Þor­valdur Lúð­vík Sig­ur­jóns­son hlutu líka dóma. Lárus var for­stjóri Glitn­is, Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta hjá bank­anum og Þor­valdur var for­stjóri Saga Capi­tal fjár­fest­inga­banka. 

Þeir áfrýj­uðu allir til Hæsta­rétt­ar. 

Auglýsing

Einn af þremur dóm­urum í mál­inu var Sig­ríður Hjalte­sted hér­aðs­dóm­ari, en skömmu eftir að dómur féll í mál­inu voru Lárus og Jóhannes ákærðir í öðru máli fyrir mark­aðs­mis­notk­un. Sig­ríður átti að vera dóm­ari í því máli en ákvað að lýsa sig van­hæfa. Það gerði hún vegna þess að meðal gagna máls­ins væru gögn sem tengd­ust fyrr­ver­andi eig­in­manni hennar og barns­föð­ur, vegna starfa hans hjá Glitni. Fyrr­ver­andi eig­in­mað­ur­inn hafði stöðu sak­born­ings í öðru máli sem var til með­ferðar hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara vegna starfa sinna fyrir bank­ann. 

Þegar hún lýsti sig van­hæfa benti sak­sókn­ari í Stím-­mál­inu á að þessi tengsl kæmu lík­lega til skoð­unar við áfrýjun þess máls fyrir Hæsta­rétti. Verj­endur kröfð­ust þess að dóm­ur­inn yrði felldur úr gildi vegna þess að Sig­ríður hefði verið van­hæf í Stím-­mál­inu líka, og á það féllst Hæsti­réttur í dag. 

Hæsti­réttur segir að málin tvö séu hlið­stæð. Tengsl og aðstæður í mál­unum tveimur séu í öllu veru­legu sam­bær­ir­legar og Sig­ríður hefði átt að víkja sæt­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent