Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars

Þegar ríkisstjórnin var skipuð var tilkynnt um að Jón Gunnarsson yrði dómsmálaráðherra í mesta lagi í 18 mánuði. Eftirmaður hans segir að hún taki við af honum fljótlega.

Guðrún Hafsteinsdóttir
Auglýsing

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi, seg­ist taka við sem dóms­mála­ráð­herra í mars næst­kom­andi. Þetta kom fram í við­tali við hana í Dag­málum á mbl.is. Þar segir hún að útlend­inga­mál kunni að verða erf­ið­ust þeirra mála sem bíða úrlausnar Alþingis eftir ára­mót. 

Frum­varp Jóns Gunn­ars­son­ar, núver­andi dóms­mála­ráð­herra, um útlend­inga­mál, fékk ekki afgreiðslu á þingi fyrir jól og samið var um það í þing­loka­samn­ingum að fresta annarri umræðu um þangað til fljót­lega eftir að þing tekur aftur til starfa eftir rúm­lega eins mán­aðar jóla­frí þann 23. jan­ú­ar. 

Eini ráð­herr­ann sem er ekki odd­viti

Það vakti tölu­verða athygli þegar til­kynnt var að Jón Gunn­ars­son yrði dóms­mála­ráð­herra í öðru ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur eftir að saman náð­ist um að halda stjórn­ar­sam­starfi Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks áfram eftir síð­ustu kosn­ing­ar. Fyrir það fyrsta er Jón ekki odd­viti síns kjör­dæmis heldur sat hann í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Krag­an­um, kjör­dæmi flokks­for­manns­ins Bjarna Bene­dikts­son­ar. Hann er eini ráð­herr­ann í rík­is­stjórn sem er ekki odd­viti. Með því að velja Jón var gekk Bjarni fram­hjá tveimur odd­vitum í lands­byggð­ar­kjör­dæm­um, Guð­rúnu í Suð­ur­kjör­dæmi og Njáli Trausta Frið­berts­syni í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Auglýsing
Þá liggur fyrir að ekki var mikil ánægja með valið á Jóni hjá sumum sam­starfs­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks í rík­is­stjórn, sér­stak­lega innan raða Vinstri grænna. Jón þykir með harð­ari stefnu en þeim líkar í mörgum umdeildum mál­um, til dæmis í mál­efnum flótta­fólks og varð­andi vopna­burð og rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu, og ljóst frá byrjun að afstaða hans í slíkum málum myndi valda Vinstri grænum vand­ræðum hjá kjós­endum sín­um. 

Jón átti þó ekki að sitja sem ráð­herra út kjör­tíma­bil­ið, heldur ein­ungis í 18 mán­uði. Svo átti Guð­rún að taka við. Hún var ekki sátt með þá ákvörð­un. Það voru Sjálf­stæð­is­menn í hennar kjör­dæmi ekki heldur og kröfðu for­mann­inn skýr­inga. 

Það styttist í að Jón Gunnarsson verði ekki lengur ráðherra.

Bjarni varði valið á Jóni með þeim rökum að Jón kæmi úr stærsta kjör­­dæmi lands­ins þar sem fylgi Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins væri mest. Hann hafi verið þing­­maður frá árinu 2007 og áður gegnt ráð­herra­emb­ætti um skamma hríð á árinu 2017. Þá var hann rit­ari flokks­ins þegar rík­is­stjórnin var mynduð og hefði, að mati Bjarna, sterkt umboð innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hefur mælst afar óvin­sæll ráð­herra

Í könnun sem gerð var í jan­úar 2022, skömmu eftir að rík­is­stjórnin tók við, kom fram að um þriðj­ungur lands­manna gerði minnstar vænt­ingar til Jóns í starfi af öllum ráð­herr­un­um. Hann var sá ráð­herra sem lang­flestir gerðu litlar vænt­ingar til.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að sam­kvæmt nýlegri könnun Mask­ínu telja 16,3 pró­sent lands­manna að Jón hafi staðið sig illa sem ráð­herra. Ein­ungis einn ráð­herra var óvin­sælli, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, en 26,8 pró­sent lands­manna telja að hann hafi staðið sig illa. Þeir eru einu ráð­herr­arnir sem fá þann dóm að hafa staðið sig verst hjá hlut­­falli lands­­manna sem nær tveggja stafa tölu. 

Í nóv­em­ber var gerð könnun þar sem spurt var um traust til ráð­herra. Þar kom fram að sá sem nyti minnst trausts væri Bjarni, en alls sögð­ust 61 pró­­sent svar­enda bera lítið traust til hans. Jón Gunn­­ar­s­­son kom fast á hæla Bjarna, en alls sögð­ust 59 pró­­sent svar­enda van­­treysta hon­­um. Jón var líka í næst neðsta sæti yfir þá ráð­herra sem svar­endur nefndu um þá sem þeir treystu best, en tæp­lega 21 pró­sent nefndu hann. Ein­ungis Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var nefnd sjaldnar er hann.

Í fyrra­haust sagði Jón að það væri ekki ákveðið að hann myndi stíga til hliðar eftir 18 mán­uði og að hann vildi vera ráð­herra leng­ur. Eftir að hafa svarað því órætt í kjöl­farið hvort fyrri áform um ráð­herra­skipti hefðu breyst tók Bjarni af allan vafa í byrjun nóv­em­ber um að Guð­rún yrði ráð­herra snemma árs 2022.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent