Segir mestu hættuna í stjórnarsamstarfinu vera íhaldssemi VG og Framsóknar

Þorsteinn Pálsson segir að framundan sé breitt samtal um höfuðmál íslenskra stjórnmála. VG og Framsókn hafi „staðið jafn fast eða jafnvel fastar gegn kerfisbreytingum en Sjálfstæðisflokkurinn“. Þeir þurfi að svara hvert hugur þeirra stefni í málunum.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Auglýsing

Þor­steinn Páls­son, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og áhrifa­maður innan Við­reisn­ar, segir að mesta hættan sem sé til staðar í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sé að sá síð­ast­nefndi nái saman með Fram­sókn­ar­flokknum og Vinstri grænum í því breiða sam­tali um nokkur höf­uð­mál íslenskra stjórn­mála sem fram undan sé. Bæði Fram­sókn og Vinstri græn hafi „staðið jafn fast eða jafn­vel fastar gegn kerf­is­breyt­ingum en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“. Flokk­arnir kom­ist ekki hjá því að svara hvert hugur þeirra stefnir í þeim efnum á næstu mán­uðum eða miss­er­um. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein sem Þor­steinn skrifar á Kjarn­ann í dag.

Þor­­steinn Páls­­son var lengi ráð­herra fyrir Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn undir lok síð­­­ustu ald­­ar, meðal ann­­ars for­­sæt­is­ráð­herra árin 1987 til 1988. Þá var hann for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins árin 1983 til 1991. Hann til­kynnti hins vegar í sept­em­ber í fyrra, í aðdrag­anda kosn­inga, að hann hefði gengið til liðs við Við­reisn. Þor­steinn bauð sig þó ekki fram fyrir flokk­inn en hefur verið áhrifa­mik­ill á bak við tjöld­in. Þor­steinn var svo gerður að for­manni þverpóli­tískrar nefndar sem á að leggj­ast yfir til­lögur um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi í maí síð­ast­liðn­um.

Í grein­inni fer Þor­steinn yfir það sem hann telur að hafi breyst með nýrri rík­is­stjórn. Að hans mati hafa Við­reisn og Björt fram­tíð náð mun meiri árangri en tal stjórn­ar­and­stöð­unnar um flokk­anna gefur til kynna. Stór mál hafi kom­ist á dag­skrá og önnur nálgun hafi orðið í lyk­il­málum sem bregð­ast þurfti við, eins og t.d. sjó­manna­verk­fall­inu og þeim aðstæðum sem sköp­uð­ust við lokun á vinnslu HB Granda á Akra­nesi. Þor­steinn segir þó að vissu­lega hefði rík­is­stjórnin geta haldið betur á ýmsum mál­um. Hann nefndir sér­stak­lega til sög­unnar þá ákvörðun að neita minni­hlut­anum á Alþingi um lengri tíma til að skoða í þing­nefnd til­lögur um skipan dóm­ara í Landsrétt.

Auglýsing

Þor­steinn segir að með hæfi­legri ein­földun má segja að við myndun þess­arar stjórnar hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aðeins farið fram á skatta­lækk­anir en óbreytt ástand að öðru leyti í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum sem leiddu af sér rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­son­ar. „Við­reisn og Björt fram­tíð vildu setja á dag­skrá breyt­ingar í land­bún­að­ar­mál­um, nýjar hug­myndir um veiði­leyfagjöld, rót­tæka end­ur­skipan á gjald­mið­ils- og pen­inga­málum og þjóð­ar­at­kvæði um hvort halda eigi áfram aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­band­ið. Allir flokk­arnir voru sam­mála um að auka áherslu á heil­brigð­is­mál.“

Það sem helst skeri í augu í stjórn­ar­sam­starfimu séu kröft­ugar og ítrek­aðar yfir­lýs­ingar þing­manna og jafn­vel ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins um and­stöðu við ein­stök atriði í stjórn­ar­sátt­mál­anum og við ákvarð­anir sem teknar hafa verið við rík­is­stjórn­ar­borð­ið. „Þetta er veik­leiki sam­starfs­ins. Satt best að segja er fremur óvana­legt að sjá brotala­mir af þessu tagi í for­ystu­flokki í rík­is­stjórn­ar.“

Við­reisn og Björt fram­tíð hafi því átt erindi í þetta stjórn­ar­sam­starf. Mesta hættan fyrir þessa tvo flokka í fram­hald­inu er sú að í því breiða sam­tali sem lagt hefur verið upp með á nokkrum sviðum nái Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn saman með þeim tveimur flokkum [Fram­sókn og Vinstri græn­um] í minni­hlut­anum sem mest eru á móti breyt­ing­um. Á næstu mán­uðum eða miss­erum kom­ast þeir flokkar tæp­ast hjá því að svara hvert hugur þeirra stefnir í þeim efn­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent