Bank of America veðjar á Dublin

Bandaríski risabankinn hefur til þessa verið með aðalbækistöð sína í Evrópu, í fjármálahverfinu í London.

bank-note-euro-bills-paper-money-63635.jpeg
Auglýsing

Banda­ríski bank­inn Bank Of Amer­ica ætlar sér að stýra starf­semi sinni í Evr­ópu frá Dublin í nán­ustu fram­tíð, en um þetta til­kynnti bank­inn í gær. Með þessu er bank­inn að bregð­ast við Brex­it-á­formum breskra stjórn­valda, en Bank Of Amer­ica hefur verið með höf­uð­starf­semi sína í Evr­ópu í City hverf­inu í London.

Bank­inn hefur þó einnig verið með starf­semi í Dublin, og í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að það sér rök­rétt skref að stýra starf­sem­inni í Evr­ópu frá Dublin. Í dag eru um 700 starfs­menn hjá bank­anum í Dublin en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi nokkuð á næstu miss­erum, að því er fram kemur í New York Times.

Margir alþjóð­legir bankar, bæði evr­ópskir og banda­rískir, hafa verið minnka starf­semi sína í London að und­an­förnu, þar sem óvissa ríkir um reglu­verk og fleiri atriði, þegar til þess kemur að Bret­land fari úr Evr­ópu­sam­band­in­u. 

Auglýsing

Frönsk og þýsk stjórn­völd hafa lagt hart að stórum fyr­ir­tækjum að færa starf­semi frá London til þeirra. Þá hafa borg­ar­yf­ir­völd í París og Frank­furt gert slíkt hið sama, í þeirri vona að draga til sín tugir þús­und hálauna­starfa, sem fylgja alþjóð­lega fjár­mála­geir­an­um. 

Mark­aðsvirði Bank of Amer­ica er nú 236,2 millj­arðar Banda­ríkja­dala, en meðal dótt­ur­fé­laga bank­ans er eign­ar­stýr­ing­aris­inn Merrill Lynch, sem bank­inn eign­að­ist eftir hrunið á fjár­mála­mörk­uð­um, 2007 til 2009.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent