Ásmundur Einar: Bragi braut ekki af sér

Félags- og jafnréttismálaráðherra segir að fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu hafi ekki gerst brotlegur í starfi.

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra segir að nið­ur­stöður rann­sóknar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á störfum for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu séu þær að Bragi Guð­brands­son fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hafi ekki gerst brot­legur í starfi með nokkrum hætti. Aftur á móti hafi verið álita­mál sem þurfi að fara ofan í.

Þetta kom fram í svari hans við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Hall­dóru Mog­en­sen þing­manns Pírata á Alþingi í dag.

Hann segir jafn­framt að staða Braga sé sterk eftir 20 ára reynslu í starfi.

Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar segir í pontu Alþingis ásak­an­irnar á hendur Braga vera af alvar­legum toga og að þær hafi ekki verið settar fram af létt­úð. Barna­vernd­ar­nefnd hafi farið fram á að for­stjór­inn yrði met­inn van­hæfur og annar feng­inn í hans stað.

Ásmundur Einar ítrekar að Barna­vernd­ar­stofa og Bragi hafi ekki brotið af sér en að ljóst þyki að ráð­ast þurfi í ákveðnar breyt­ing­ar. Hann sé sam­mála þess­ari nið­ur­stöðu og segir hann enn­fremur að Bragi sé fram­bæri­legur fram­bjóð­andi fyrir hönd Íslands.

Þor­­steinn sagði á Face­­book-­síðu sinni í gær að Ásmundur Einar hljóti að opin­bera nið­­ur­­stöðu á rann­­sókn vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­is­ins vegna kvart­ana barna­vernd­­ar­­nefnda höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins yfir störfum Braga.

Síð­­ast­lið­inn föst­u­dag sam­­þykkti rík­­is­­stjórnin að sækj­­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­­ar­­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Bragi Guð­brands­­son verður full­­trúi Íslands í kjöri til nefnd­­ar­inn­ar en í henni sitja 18 sér­­fræð­ingar og hafa þeir það hlut­verk að fylgj­­ast með Barna­sátt­­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ásmundur Einar veitti Braga leyfi til eins árs frá starfi sínu sem for­­stjóri Barna­vernd­­ar­­stofu. „Staða Braga sem fram­­bjóð­anda Íslands er talin sterk vegna ára­tuga reynslu hans af mála­­flokknum og þátt­­töku í alþjóð­­legu sam­­starfi á þessu svið­i,“ segir í til­­kynn­ingu frá ráðu­­neyti Ásmundar Ein­­ar­s.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent