Ummyndanir

Úlfar Þormóðsson skrifar um þær leiðir sem ný-kratar hafa beitt til að rétta af fjárlagahallann í Reykjavík. Sem fela meðal annars í sér að reka heimilislausa fólkið úr sambýlum og út á gaddinn um miðjan dag.

Auglýsing

Það er þriðju­dag­ur. Klukkan er rúm­lega 11. Ég var að koma inn úr dyr­un­um, þrí­fall­inn á klaka bólgnum gang­stétt­um, en óbrot­inn. Ég opna fyrir Rík­is­út­varp­ið. Það er verið að tala um lít­il­magn­ann, úti­gangs­fólk, og um afdrep fyrir fólk með geð­rask­an­ir, Vin. Og ég skamm­ast mín fyrir yfir­völd, stjórn­mál­in.

Eini sinni var Sós­í­alista­flokk­ur. Svo dró úr sós­í­al­ism­anum hjá mörgum og til varð Alþýðu­flokk­ur, krat­ískur flokk­ur. Hann var bæði með og móti sjálfum sér og stefnu sinni. Þegar hann var að verða að engu var honum rennt inn í aðra flokka af margri sort. Kok­teill­inn fékk heitið Sam­fylk­ing. Fyr­ir­svars­menn hennar töl­uðu fal­lega til alþýðu manna og á auga­bragði varð hún annar stærsti flokkur lands­ins. Svo fóru þeir að stjórna og sýna hvað í þeim býr og bjó. Eftir það hall­aði undan fæti og það fækk­aði í fylk­ing­unni. Í síð­ustu þing­kosn­ingum varð hún örflokkur á þingi. Í nýliðnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum tap­aði hún tveimur borg­ar­full­trúum í Reykja­vík, en þó svo  digur enn í borg­inni að hún er þar í meiri­hluta, með öðrum að vísu, en í meiri­hluta eigi að síður og hefur verið á annan ára­tug. 

Auglýsing
Í þessum þreng­ingum Sam­fylk­ing­ar­innar gripu hugs­uðir hreyf­ing­ar­innar enn einu sinni til sama ráðs og áður; að skipta um for­mann. Hún kaus sér unga, vaska og fram­bæri­lega konu, mennt­aða á fjár­mála­mark­aði. Hún (for­mað­ur­inn) ætlar að breyta ásýnd Sam­fylk­ing­ar­innar með því að end­ur­raða for­gangs­mál­um; færa ESB, flótta­manna­mál og annað smá­ræði aftar á list­ann og setja bar­áttu­mál jafn­að­ar­manna, aðstoð við bág­stadda, í for­gang. Og það var þegar tekið til máls; það verð­ur, það er lífs­nauð­syn að bæta hag þeirra sem verst eru sett­ir. Það ætlum að gera og það munum við gera um leið og við fáum því við­kom­ið: Við erum jafn­að­ar­menn; þolum ekki órétt­læti.

Á meðan jafn­réttis ræð­urnar hljóm­uðu á þingi og prent­uðu orð ný-krata bár­ust um land allt í blöðum og á net­inu sátu Sam­fylk­ing­ar­menn við stjórn­borðið í Reykja­vík að brugga ráð til að rétta af hall­ann á rekstri borg­ar­inn­ar. Og þeir fundu ráð, Krat­arn­ir. Sín ráð. Nið­ur­skurð. Þeir ætla að bæta hag borg­ar­innar með því að reka heim­il­is­lausa fólkið úr sam­býlum og út á gadd­inn um miðjan dag. Þetta eru líka flæk­ingar úr nágranna bæj­unum og við, Reyk­vík­ing­ar, eigum auð­vitað ekki að bera ábyrgð á þeim. En þegar að var gáð dugði þetta eitt ekki til að rétta af efna­hags­reikn­ing­inn. Það þurfti meira til. Og lausnin lá við dyr borg­ar­ráðs; lokum Vin. Þetta er flott hús­næði, vel mubler­að, og þarna er bara fólk með geð­rask­anir að hitt­ast yfir hádag­inn. Það hlýtur að vera hægt að hola því niður ann­ars stað­ar; til dæmis á bóka- og lista­söfnum borg­ar­inn­ar. Sam­þykkt; út með föru­menn, róna og geðsjúk­linga. Þetta fólk bjargar sér; það er vant því. Spörum aur­inn. 

Von­andi má fram­an­ritað vera áminn­ing til okkar allra og hvatn­ing til þess að fylgj­ast með orðum og gjörðum lof­orða gaukanna; mis­mun­inum milli orðs og æðis. Ummynd­un­inni.

Höf­undur er rit­höf­und­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar