Forseti ASÍ orðlaus yfir launahækkunum Landsvirkjunar

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir ráðherra og ríkisstjórn hljóta að samþykkja launahækkanir Landsvirkjunar og segir það alvarlegt að þetta komi ofan í samræður verkalýðshreyfingarinnar við stjórnvöld um kjararáð.

Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Auglýsing

Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ seg­ist orð­laus yfir fréttum af 45 pró­senta launa­hækk­unum stjórn­ar­manna og for­stjóra Lands­virkj­un­ar.

Greint var frá því í morgun á vef RÚV að sam­kvæmt árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar hafi laun stjórn­ar­mann­anna hækkað með þessum hætti, en auk þess hafi laun fimm fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­for­stjóra hækkað um 24 pró­sent.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Gylfi þetta vera með ólík­ind­um. „Ég skil það sem svo að þetta hljóti að hafa verið með sam­þykki rík­is­stjórnar eða þessa ráð­herra sem fer með mál­efni Lands­virkj­un­ar. Eru þau ekki hlut­haf­inn?“

Auglýsing

Allar tölur í árs­reikn­ingnum eru í doll­ur­um, en sam­kvæmt því hafa laun stjórn­ar­manna og for­stjóra hækkað um 49 pró­sent milli ára en þegar tekið er til­lit til sterkara gengis krón­unnar má gera ráð fyrir að hækk­unin nemi 45 pró­sentum í íslenskum krón­um. Með sama hætti hækk­uðu laun stjórn­ar­manna í tveimur dótt­ur­fé­lögum um 40 pró­sent og laun fimm fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­for­stjóra Lands­virkj­unar um 24 pró­sent.

Stjórn­ar­laun hækk­uðu úr 12,7 millj­ónum króna í nítján millj­ónir á milli ára, sam­kvæmt fram­setn­ingu árs­reikn­ings­ins. Laun for­stjóra fóru úr 1,7 milljón í 2,5 millj­ónir á mán­uði. Sam­an­lögð laun fimm fram­kvæmda­stjóra og aðstoð­ar­for­stjóra fóru úr 136 millj­ónum í 171 millj­ón, eða að með­al­tali úr 1,9 millj­óna króna mán­að­ar­launum í 2,4 millj­ón­ir.

Gylfi segir það alvar­legt að þetta mál komi ofan í umræð­una sem uppi hefur verið um mál­efni kjara­ráðs. „Ég veit ekki hvenær þessi ákvörðun um þessar launa­hækk­anir hefur verið tek­in. Þetta birt­ist okkur bara í gegnum árs­reikn­ing­inn. Ég er bara orð­laus. Það er bara þannig. Bara orð­laus,“ segir Gylfi.

Hann seg­ist ekki geta sagt fyrir um afleið­ingar þessa í við­ræðum ASÍ við stjórn­völd um for­sendur kjara­samn­inga, en í síð­ustu viku lýsti mið­stjórn ASÍ því yfir að þau teldu for­sendur kjara­samn­inga brostnar vegna ákvarð­ana kjara­ráðs um launa­hækk­anir þeirra sem undir ráðið heyra. For­manna­fundur aðild­ar­fé­laga ASÍ fer fram á morgun þar sem fjallað verður um stöð­una og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar.

„Við erum búin að vera í deilum við stjórn­völd um með hvaða hætti þau eigi að grípa inn í þegar kemur að kjara­ráði og á sama tíma er verið að taka svona ákvarð­anir hjá Lands­virkj­un. Maður er bara alveg í for­undran að ráð­hera hafi sam­þykkt þessa nið­ur­stöð­u,“ segir Gylfi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent