Samþykki veitt fyrir sölu á Rio Tinto á Íslandi

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur fengið umboð til að veita skriflegt samþykki við fyrirhugaðri sölu á öllum eignarhlutum í Rio Tinto á Íslandi til Hydro Aluminium AS og að félagið taki þar með yfir aðalsamninginn frá 1966.

Rio Tinto
Rio Tinto
Auglýsing

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi í morgun að veita Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­ur ­ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra ­um­boð til að veita skrif­legt sam­þykki við ­fyr­ir­hug­aðri sölu á öllum eign­ar­hlutum í Rio Tinto á Íslandi hf. frá Alcan Hold­ing Switz­er­land AG til Hydro Alu­minium AS, vegna álvers­ins í Straums­vík, og að félagið taki þar með yfir aðal­samn­ing­inn frá 1966. 

Þórdís Kolbrún R. GylfadóttirÞór­dís er stödd erlendis og mun hún skrifa undir bréfið þegar hún kemur heim á morg­un, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Í fram­haldi af því hefst vinna um gerð laga­frum­varps sem miðar að því að fella úr gildi og rifta aðal­samn­ingnum frá 1966, í sam­ræmi við vilja nýs eig­enda og stjórn­valda. Stefnt er að því að leggja slíkt frum­varp fram á Alþingi á kom­andi haust­þingi.

Auglýsing

Eins og Kjarn­inn greindi frá í febr­úar síð­ast­liðnum þá gerði norska fyr­ir­tækið Norsk Hydro ASA skuld­bind­andi til­­­boð um að kaupa álverið í Straum­s­vík af núver­andi eig­anda þess, Rio Tinto. Í til­­­boð­inu felst að kaupa allt hlutafé í íslenska álver­inu, 53 pró­­sent hlut í hol­­lenskri verk­smiðju Rio Tinto og helm­ings hlut í sænskri verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins. Til­­­boðið í allan pakk­ann hljóðar upp á 345 millj­­ónir dali, eða 34,7 millj­­arða króna.

Norsk Hydro er eitt stærsta álfyr­ir­tæki í heimi. Norska ríkið á 43,8 pró­­sent hlut í því og norski olíu­­­sjóð­­ur­inn á auk þess 6,5 pró­­sent hlut. Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa um 13 þús­und manns. Hluta­bréf Norsk Hydro eru skráð í kaup­höll­inni í Osló.

52 ára samn­ingur

Aðal­samn­ingur milli rík­is­stjórnar Íslands og Swiss Alu­minium Limited, sem nú er Rio Tinto á Íslandi hf., um álver í Straums­vík er upp­haf­lega frá 28. mars 1966. Hefur samn­ingnum verið breytt níu sinnum og hefur sam­þykki Alþingis fyrir við­kom­andi við­auka­samn­ingum verið aflað í hvert sinn. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­in­u. 

Sam­kvæmt aðal­samn­ingnum er sala á eign­ar­hlutum í félag­inu, og yfir­taka á samn­ingn­um, háð sam­þykki íslenskra stjórn­valda. Óskaði Hydro Alu­minium AS eftir slíku sam­þykki.

Afstaða Hydro er sú að aðal­samn­ing­ur­inn frá 1966 sé úreltur og óskaði félagið eftir því að í fram­haldi af því að íslensk stjórn­völd sam­þykki kaup félags­ins á álver­inu þá verði sett af stað vinna sem hafi það að mark­miði að rifta aðal­samn­ingn­um. Slík ákvörðun um riftun er háð sam­þykki Alþingis og verði það nið­ur­staðan að fella aðal­samn­ing­inn úr gildi er það ósk Hydro að það verði gert með laga­frum­varpi í haust, segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent