Áfram Ísland!

Stóri dagurinn er í dag. Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik liðsins á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Sjáðu byrjunarliðin hjá báðum þjóðum og gerðu þig klára/n fyrir öskurveislu og hæsi með Gumma Ben!

Gylfi Messi
Auglýsing

Ísland hefur keppni á HM í Rúss­landi í dag þegar liðið mætir sterku liði Argent­ínu. Þar er fremstur meðal jafn­­ingja, einn allra besti leik­­maður heims, Lionel Messi, leik­­maður Barcelona og Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um hér.

Það verður að finna leiðir til stöðva hann, ef leik­­ur­inn á að fara vel fyrir Ísland. Svo mikið er víst.

Greint var frá byrj­un­ar­liði Argent­ínu í gær en Heimir Hall­gríms­son þjálf­ari Íslands birti okkar lið nú fyrir skömmu.

Auglýsing

Byrj­un­ar­lið Íslands:

Hannes Þór Hall­dórs­son

Birkir Már Sæv­ars­son

Ragnar Sig­urðs­son

Kári Árna­son

Hörður Björg­vin Magn­ús­son

Jóhann Berg Guð­munds­son

Aron Einar Gunn­ars­son

Birkir Bjarna­son

Gylfi Þór Sig­urðs­son

Alfreð Finn­boga­son

Mynd: Birgir Þór Harðarson.

Byrj­un­ar­lið Argent­ínu:

Mark­vörð­­­ur­: Willy Caball­­­er­o (Chel­­­sea)

Hægri bak­vörð­­­ur­: Ed­u­­­ardo Sal­vi­o (Ben­fica)

Vinstri Bak­vörð­­­ur­: N­icolas Tagli­afico (A­jax)

Mið­verð­ir: N­icolas Ota­m­end­i (M­­­an.City), Marcos Rojo (M­­­an.Utd)

Miðju­­­menn: Ja­vier Mascher­a­no (Hebei China Fortu­­­ne), Lucas Bigl­i­a (AC Milan),  Angel Di Mar­í­a (PS­G), Max­im­il­i­ano Meza (Ind­erpend­i­ente).

„Tí­a“: Lionel Messi (Barcelona)

Fram­herj­­­i: Sergio Agu­er­o (M­­­an.City).

Lionel MessiÍslenska A-karla­lands­liðið hefur aldrei keppt áður á móti liði Argent­ínu í sög­unni og eins og alþjóð veit ekki heldur á Heims­meist­ara­mót­inu, svo burt­séð frá því hvernig fer verður viður­eignin alltaf sögu­leg.

Þrátt fyrir sterka mótherja í upp­hafi móts hefur íslenska liðið hefur sýnt það, að þegar leik­­menn standa saman þá getur það lagt sterka and­­stæð­inga af velli, og haldið stór­­stjörnum í skefj­­um.

Rifja má upp að liðið gerði jafn­tefli í fyrsta leik Evr­ópu­meist­ara­móts­ins fyrir tveimur árum síð­an, gegn Portú­gal, 1-1. Í öðrum leik liðs­ins „tap­aði“ liðið með því að gera aftur 1-1 jafn­tefli, þá á móti Ung­verja­landi. Í loka­leik riðla­keppn­innar vann liðið síðan fræk­inn sigur á Aust­ur­ríki, 2-1, kom íslenska lands­lið­inu upp úr riðl­inum í hinn sögu­lega sig­ur­leik gegn Englandi í útslátt­ar­keppn­inni. Sá leikur fór 2-1 fyrir Íslandi sem síðan tap­aði fyrir Frakk­landi í 8 liða úrslit­um.



Núna er að duga eða drep­ast aft­ur, og leggja líf og sál í leik­ina framund­­an.

Á­fram Ísland!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent