Telur Haga enn vera markaðsráðandi

Samkeppnisyfirlitið lítur svo á að innkoma Costco í fyrra hafi ekki breytt markaðsráðandi stöðu Haga á smásölumarkaði.

Hagar hafa meðal annars lagt til að selja tvær Bónusverslanir til að koma samrunanum í gegn.
Hagar hafa meðal annars lagt til að selja tvær Bónusverslanir til að koma samrunanum í gegn.
Auglýsing

Opnun Costco í fyrra breytti ekki mark­aðs­ráð­andi stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta kemur fram í nýrri frétt Sam­keppn­is­yf­ir­lits­ins, en einnig er fjallað um málið í Frétta­blað­inu í dag. 

Kaup Haga á Olís og DGV

­Sam­keppn­is­yf­ir­litið hefur til skoð­unar kaup Haga á Olíu­verzlun Íslands hf. og fast­eigna­fé­lags­ins DGV, en fyrri rann­sókn á sam­run­anum hófst í sept­em­ber í fyrra og lauk í byrjun mars fyrr á þessu ári.  Á meðan rann­sókn stóð yfir and­mælti eft­ir­litið sam­run­anum og sagði hann ekki verða sam­þykktan án skil­yrða. 

Í byrjun mars senda Hagar þá frá sér til­lögur til að upp­fylla skil­yrði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en að mati stofn­un­ar­innar komu til­lög­urnar of seint fram og hætt var við sam­run­ann.

Auglýsing

Þremur vikum seinna sendu Hagar nýja sam­runa­til­kynn­ingu og er í reglu­legum sam­skiptum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í kjöl­farið til að finna ásætt­an­leg skil­yrði sem þyrftu að liggja fyrir svo sam­run­inn gæti átt sér stað. Síð­ast­lið­inn föstu­dag sendu Hagar svo loka­til­lögur sínar að skil­yrð­um, en þær fela í sér sölu á tveimur Bón­usversl­un­um, einni fast­eign félags­ins þar sem rekin er Bón­usversl­un, tveggja bens­ín­stöðva Olís auk einnar stöðvar ÓB. Í bréfi sem fylgdi til­lögum Haga, segir fyr­ir­tækið að gengið sé mjög langt í til­lög­unum og telja engin rök liggja fyrir um strang­ari aðgerðir til að gera sam­run­ann mögu­leg­an.  

Á mánu­dag­inn sendi svo Sam­keppn­is­eft­ir­litið frá sér bréf til hags­muna­að­ila sam­run­ans þar sem leitað var sjón­ar­miða þeirra á þessum til­lög­um. Í bréf­inu kynnti eft­ir­litið einnig frum­mat sitt eftir rann­sókn á áhrifum inn­komu Costco, en sam­kvæmt frummat­inu breytti  opnun banda­ríska smá­söluris­ans ekki mark­aðs­stöðu Haga í fyrra. 

Sjón­ar­mið hags­muna­að­il­anna eiga að ber­ast á næstu dögum og hafa þau áhrif á það hvort eft­ir­litið sam­þykki til­lög­urnar eða ekki. Fari svo að eft­ir­litið fall­ist ekki á þær verður sam­run­inn ógild­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent