Kodak dregur úr Bitcoin-útrásinni sinni

Kodak hefur hætt við útleigu á bitcoin-námum eftir kynningu á þeim fyrr í ár. Leyfishafi Kodak mun þess í stað einbeita sér að vinnslu rafmynta á Íslandi.

Varan KashMiner átti að framleiða Bitcoin-rafmynt fyrir notendur sína.
Varan KashMiner átti að framleiða Bitcoin-rafmynt fyrir notendur sína.
Auglýsing

Koda­k hefur hætt við áform sín um að leigja út bitcoin-­námur til neyt­enda sinna, en fram­leið­andi námanna mun snúa sér að bitcoin-vinnslu á Íslandi í stað­inn. Þetta kemur fram í nýrri frétt BBC

Hætt við útrás

Síð­ast­lið­inn jan­úar kynnt­i Koda­k ­fyr­ir­hug­aða útrás í starf­semi sinni á raf­mynta­mark­að­inn, ann­ars vegar með útgáfu raf­myntar að nafn­i Koda­kCoin og hins vegar með upp­setn­ing­u raf­mynta­náma til not­enda sinna. Fjár­festar tóku frétt­unum nokkuð vel, en í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar rauk hluta­bréfa­verð Koda­k ­upp í um 120%.

Auglýsing

Námu­út­leiga fyr­ir­tæk­is­ins átti að fara fram með sér­stakri vöru fyr­ir­tæk­is­ins, KashMiner, sem Koda­k kynnti á CES-­tækni­ráð­stefn­unni í Las ­Veg­a­s ­fyrr á þessu ári. KashMiner var í umsjá leyf­is­hafa Koda­k, ­Spotlite, en til­gangur vör­unnar var að fram­leiða bitcoin-raf­mynt­ina fyrir neyt­endur gegn um 3.400 Banda­ríkja­dala greiðslu.

Fram­kvæmda­stjóri ­Spotlite, Hal­ston ­Mikail, lýsti einnig yfir áformum fyrr í ár um að gang­setj­a hund­ruð­ir KashMiner-vara hjá höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í New York, en sam­kvæmt honum voru 80 vörur nú þegar starf­rækt­ar. 

Í umfjöll­un BBC var verk­efnið harð­lega gagn­rýnt þar sem ekki sást hvernig það myndi ná sínum yfir­lýstu hagn­að­ar­mark­mið­um. Kynn­ing ­Spotlite ­gerði ráð fyrir mán­að­ar­legum 375 ­Banda­ríkja­dala ­tekjum í tvö ár fyrir leigu á tæk­inu, en gagn­rýnendur sögðu fyr­ir­tækið ekki hafa tekið til­lit til vax­andi flækju­stigs bitcoin-­náma­vinnslu, sem skili að öllum lík­indum minni hagn­aði í fram­tíð­inn­i. 

Tals­mað­ur­ Koda­k lýsti því svo yfir í við­tali við BBC að einka­leyfi á KashMiner hafi aldrei verið veitt og að engar vörur hafi verið gang­sett­ar. Í við­tali frétta­stof­unnar við ­Mikail ­segir hann fjár­mála­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna hafa komið í veg fyrir það, en fyr­ir­tækið muni þess í stað ein­beita sér  á raf­mynt­ar­vinnslu á Ísland­i. 

Umfangs­mikil fram­leiðsla á Íslandi 

Náma­vinnsla raf­mynta er umtals­verð á Íslandi, en sam­kvæmt nýlegri frétt Grapevine er talið að um það bil 10% allrar raf­mynt­ar­vinnslu heims­ins fari fram hér á landi, þótt nákvæmt umfang sé ekki nákvæm­lega vit­að. Stærstu fyr­ir­tækin sem sjá um mynt­ar­vinnsl­una hér­lendis eru að öllum lík­ind­um Genes­is M­in­ing Iceland ehf. og Bit­fury Iceland ehf., sam­kvæmt umfjöllun Kvenna­blaðs­ins um málið

Vinnsla raf­mynta hefur vakið athygli vegna gríð­ar­mik­illar orku­þarfar, en öll fram­leiðsla á bitcoin-raf­myntum er talin eyða um 30,14 Ter­awatts­stund­um á ári, en það jafn­gildir meiri raf­orku en heild­ar­neysla Írlands.

Sömu­leiðis greindi Stundin frá orku­freku ­gagna­ver­i A­dvani­a í Reykja­nesbæ sem notað var til bitcoin-vinnslu, en verið not­aði um eitt pró­sent af allri orku­fram­leiðslu Íslands. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent