Stór hluti skýrslu um Samgöngustofu gerður ólæsilegur

Stór hluti af áfangaskýrslu starfshóps sam­gönguráðuneyt­is­ins um störf og starfs­hætti Sam­göngu­stofu er svertur svo ekki er hægt að lesa hvað þar stendur. Ráðuneytið hefur ekki svarað spurningum Kjarnans um hvað veldur.

Singi skýrsla
Auglýsing

Stór hluti af áfanga­skýrslu starfs­hóps sam­­göngu­ráðu­neyt­is­ins um störf og starfs­hætti Sam­­göng­u­­stofu er svertur svo ekki er hægt að lesa hvað þar stend­ur.

Um er að ræða að mestu kafla hóps­ins um stjórnun stofn­un­ar­inn­ar, í yfir­kafla sem nefn­ist „Helstu athuga­semdir sem starfs­hópnum bárust“.

Í læsi­legum hluta kafl­ans segir að mik­il­væg­ustu ábend­ing­arnar sem starfs­hópnum hafi borist lúti að fjár­mögnun stofn­un­ar­innar sem ekki hafi fengið að nýta til fulls tekjur sínar af þjón­ustu­gjöldum til að bregð­ast við stór­auknum verk­efn­um, einkum vegna auk­ins inn­flutn­ings öku­tækja. Einnig hafi athuga­semdir beinst að áherslum í rekstri og stjórn­un.

Auglýsing

Áfangaskýrsla um Samgöngustofu.Sér­stak­lega er tekið fram að mikið álag sé á starfs­fólki og starfs­á­nægja tak­mörkuð af þeim sök­um.

Kjarn­inn krafði sam­göngu­ráðu­neytið um rök­stuðn­ing fyrir því af hverju svo stór hluti skýrsl­unnar sé gerður ólæsi­leg­ur. Ekki hafa borist svör að svo stöddu.

Morg­un­blaðið hefur fjallað ítar­lega um starfs­hóp­inn og skýrsl­una sem  Jón Gunn­­ar­s­­son, þáver­andi sam­­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráð­herra, setti í mars 2017 á stofn sem átti að vinna grein­ingu á verk­efn­um Sam­­göng­u­­stofu. Starfs­hóp­­ur­inn skil­aði af sér umræddri áfanga­­skýrslu í októ­ber á síð­asta ári en síðan ekki sög­una meir.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið sagði Sig­urður Kári Krist­jáns­son lög­maður og for­maður starfs­hóps­ins að hóp­ur­inn hafi gert athuga­semdir við ýmis­legt í innri starf­semi og stjórnun Sam­göngu­stofu. Öll þau atriði hafi verið til­greind og rök­studd ítar­lega en í kjöl­farið hafi ráðu­neytið ekki óskað eftir því að starfs­hóp­ur­inn legði af mörgum frek­ari vinnu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent