Björgólfur Thor segir að því hafi verið hvíslað að sér hverjir eigi Dekhill Advisors

Björgólfur Thor Björgólfsson segir að ýmsir sem þekki vel til hafi hvíslað því að honum að stærsti hluthafi Kauþþings og æðstu stjórnendur bankans hafi verið að baki Dekhill Advisors, sem hagnaðist um 4,7 milljarða króna við einkavæðingu Búnaðarbankans.

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndar sem gat ekki svarað því hver hefði átt Dekhill Advisors. Björgólfur Thor Björgólfsson telur sig nú vera með upplýsingar um það.
Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndar sem gat ekki svarað því hver hefði átt Dekhill Advisors. Björgólfur Thor Björgólfsson telur sig nú vera með upplýsingar um það.
Auglýsing

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, athafna­maður og fyrr­ver­andi kjöl­festu­eig­andi í Lands­bank­an­um, segir í nýrri stöðu­færslu á vef sínum að þótt því hafi verið vand­lega haldið leyndu fyrir skatt­rann­sókn­ar­stjóra hverjir eigi aflands­fé­lagið Dek­hill Advis­ors Limited þá hafi „ýmsir sem þekkja þokka­lega til hafa hvíslað því að mér að þar að baki séu stærsti hlut­hafi og æðstu stjórn­endur Kaup­þings.“

­Stæsti ein­staki hlut­hafi Kaup­þings fyrir banka­hrun var Exista, fjár­fest­inga­fé­lag þar sem ráð­andi eig­endur voru bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­­sent hlut í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í jan­úar 2003, sem birt var í fyrra, kom fram að aflands­fé­lagið Dek­hill Advis­ors Limited, skráð á Tortóla, hafi hagn­ast um 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 2,9 millj­arða króna á þávirði, á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á bank­an­um. Á núvirði er upp­hæðin um 4,7 millj­arðar króna.

Auglýsing
Niðurstöður rann­sókn­ar­innar sýndu að ítar­leg gögn styðji að Hauck & Auf­häuser, Kaup­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Lux­em­bo­urg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­sonar fjár­­­festis hafi not­að leyn­i­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­legt eign­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í orði kveðnu.  

Hafna aðkomu, vilja ekki aðstoða eða muna ekki

Rann­sókn­ar­nefndin komst ekki að því hver væri eig­andi Dek­hill Advis­ors með óyggj­andi hætti né hverjir hafi haft aðgang að þeim fjár­munum sem fóru til félags­ins í gegnum bak­samn­inga. Nefndin ályktaði hins vegar að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess. Síðan þá hefur verið reynt að sann­reyna hverjir þeir eru, en án árang­urs.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sagði í svar­bréfi sínu við spurn­ingum nefnd­ar­innar að hann teldi „óhætt að full­yrða að ég hafi aldrei heyrt minnst á félagið Dek­hill Advis­ors Limited fyrr en í bréfi nefnd­ar­inn­ar“. Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, sagð­ist í sínu bréfi ekki geta „að­stoðað nefnd­ina við að svara þeim spurn­ingum sem að mér er bein­t“.

Auglýsing
Bræðurnir Ágúst og Lýður sögðu í sam­hljóma svar­bréfum að þeim reki ekki minni til þeirra atriða sem nefnd voru í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fær ekki upp­lýs­ingar

Kjarn­inn greindi frá því fyrir mán­uði síðan að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fái ekki upp­lýs­ingar um hver eig­andi Dek­hill Advis­ors sé frá sviss­neskum yfir­völd­um. Ástæðan sé sú að eig­endur félags­ins lögðu fram vott­orð þess efnis að þeir væru ekki skatt­skyldir á Íslandi, og þar af leið­andi töldu yfir­völd í Sviss sig ekki geta veitt emb­ætt­inu upp­lýs­ing­arn­ar.

Í svari Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans sagð­i:„Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sig hafa trú­verð­ugar vís­bend­ingar um það hvaða aðil­i/að­ilar þarna er um ræða og hefur upp­lýst skatt­yf­ir­völd við­kom­andi ríkis um mál­ið. Eftir atvikum geta þau þá fylgt mál­inu eftir telja þau ástæðu til.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent