Bætt velferðarkerfi, minni fátækt og meiri jöfnuður mikilvægustu málefni þjóðarinnar

Mikilvægustu málefni þjóðarinnar þessa dagana eru bætt velferðarkerfi og minni fátækt en landsmönnum þykir bætt móttaka flóttamanna ekki mikilvæg samkvæmt nýrri könnun.

Laugavegur um sumar
Auglýsing

Íslend­ingum þykir bæt­ing vel­ferð­ar­kerf­is­ins og auk­inn jöfn­uður í sam­fé­lag­inu mik­il­væg­ustu mál­efnin sam­kvæmt nýrri könnun EMC. Í henni var kannað hvað Íslend­ingar teldu vera mik­il­væg­ustu mál­efnin um þessar mund­ir, en úrtakið var 800 manns.

Flestir nefndu bæt­ing vel­ferð­ar­kerf­is­ins sem mik­il­væg­asta mál­efnið eða 64,1 pró­sent í heild­ina. Fast á hæla þess þótti mál­efnið að draga úr fátækt og auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu mik­il­væg­ast eða rúm­lega 60 pró­sent. Þar á eftir kom skyn­sam­leg nýt­ing nátt­úru­auð­linda, verndun umhverf­is­ins og tak­mörkun spill­ing­ar. ­Mál­efnið sem skor­aði lægst er bætt mót­taka flótta­manna með aðeins 17,6 pró­sent. Aðeins 19,3 pró­sent sögðu auk­inn hag­vöxt mik­il­væg­asta mál­efn­ið. 

Tölu­verðan mun má greina á afstöðu fólks eftir bak­grunns­breytum en breyt­urnar voru kyn, búseta, ald­urs­hópur og hvað mynd­iru kjósa núna. Konur eru lík­legri en karlar til að nefna umhverf­is­mál, tak­mörkun spill­ing­ar, aukið kynja­jafn­rétti og minnkun fíkni­efna­notk­un­ar. Yngra fólk leggur meiri áherslu en það eldra á bætt vel­ferð­ar­kerfi, umhverf­is­mál, lækkun skatta og aukið jafn­rétti kynj­anna.

Auglýsing

Tals­verður munur eftir flokkum

Áhuga­vert er að sjá að í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar voru mik­il­væg­ustu mál­efn­inin annað hvort bæt­ing vel­ferð­ar­kerf­is­ins eða að draga úr fátækt­/auka jöfnuð hjá öllum flokk­um.

Þeim flokki sem fannst mik­il­væg­asta að lækka skatta er Flokkur fólks­ins eða um 66 pró­sent. Það mál­efni þótti einnig mik­il­vægt hjá stuðn­ings­mönnum Mið­flokks­ins eða um 54 pró­sent og hjá Sjálf­stæð­is­flokknum þóttu 43,5 pró­sent þeirra sem myndu kjósa flokk­inn það mik­il­væg­ast að lækka skatta.  

Rúm­lega helm­ingur stuðn­ings­manna Mið­flokks­ins þótti mik­il­væg­ast að tak­marka fjölda inn­flytj­enda eða 52,5 pró­sent. En það að tak­marka inn­flytj­endur þótti aðeins 4 pró­sent stuðn­ings­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar mik­il­væg­ast.

Tak­mörkun spill­ingar mik­il­væg 

Lands­mönnum þótti einnig mál­efnið tak­mörkun spill­ingar mik­il­vægt en í heild­ina svör­uðu 49 pró­sent því sem einu af mik­il­væg­ustu mál­efn­un­um. Það þótti mik­il­væg­ast hjá stuðn­ings­mönnum Pírata 67,7 pró­sent en það þótti einnig mjög mik­il­vægt hjá Flokki Fólks­ins eða 64,2 pró­sent.

Píratar og stuðn­ings­menn VG leggja mestu áherslu á jafn­rétti kynj­anna. ­Stuðn­ings­menn Sam­fylk­ing­ar­innar ásamt stuðn­ings­fólki Við­reisnar og Pírata leggja mesta áherslu á skyn­sam­lega nýt­ingu nátt­úrauð­linda. 

Stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Mið­flokks­ins lögðu mikla áherslu á minnkun fíkni­efna­notk­unar en á hinn bóg­inn þótti Píratar ólík­leg­astir til að telja mik­il­væg­ast að draga úr fíkni­efna­notk­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent