Ábyrgð ráðherra að upplýsa Alþingi

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fram frumvarp um breytingar á lögum um ráðherraábyrgð. Efni frumvarpsins tekur til upplýsingaskyldu ráðherra gagnvart Alþingi.

Oddný Harðardóttir
Oddný Harðardóttir
Auglýsing

Odd­ný Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, lagði fram frum­varp til breyt­ingar á lögum um ráð­herra­á­byrgð í gær. Með henni voru flutn­ings­menn úr öllum fimm stjórn­ar­and­stöðu­flokk­un­um. Frum­varpið kveður á um á­byrgð ráð­herra gagn­vart Alþingi ef hann greinir rangt frá, gefur þing­mönnum og þing­inu vill­andi upp­lýs­ingar eða leynir upp­lýs­ingum sem mik­il­vægar eru fyrir með­ferð mála á Alþing­i.   

Sam­bæri­leg frum­vörp hafa verið lögð fram áður, síð­ast á síð­asta lög­gjaf­ar­þingi en hafa ekki farið í efn­is­lega umræðu á þingi. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að málið nú lagt fram að nýju sem liður í því að styrkja þing­ræðið og eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu.

Brot gegn upp­lýs­inga­skyldu varðar við­ur­lög

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að það er grund­vall­ar­for­senda lýð­ræðis að þjóð­kjörnir full­trúar hafi réttar upp­lýs­ingar til þess að byggja ákvarð­ana­töku sína á. Rangar upp­lýs­ingar geta hæg­lega leitt til þess að þingið kom­ist að annarri nið­ur­stöðu en ella. Þá getur skortur á upp­lýs­inga­gjöf leitt til trún­að­ar­brests milli þings og ráð­herra. Til að Alþingi megi sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu sem skyldi er afar mik­il­vægt að þing­menn fái nægi­leg­ar, réttar og grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um þau mál sem eru til umfjöll­unar hverju sinn­i. 

Auglýsing

Til að und­ir­strika mik­il­vægi upp­lýs­inga­skyldu ráð­herra til Alþingis er í frum­varpi þessu lagt til að brot gegn henni, í formi rangra eða vill­andi upp­lýs­inga eða leynd upp­lýs­inga er hafa veru­lega þýð­ingu við með­ferð máls, varði við­ur­lögum sam­kvæmt almennum skil­yrðum laga um ráð­herra­á­byrgð.

Ráð­herra­á­byrgð

Lög um ráð­herra­á­byrgð eru að stofni til frá 1963 og hefur lítið verið breytt frá þeim tíma. Þau kveða á um ábyrgð ráð­herra á stjórn­ar­fram­kvæmdum og hvenær megi krefja ráð­herra ábyrgð­ar. Meg­in­reglan er sú að það skuli gert ef ráð­herra hefur ann­að­hvort af ásetn­ingi eða stór­kost­legu hirðu­leysi farið í bága við stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins, önnur lands­lög eða að öðru leyti stofnað hags­munum rík­is­ins í fyr­ir­sjá­an­lega hættu.

Lög um ráð­herra­á­byrgð taka ekki sér­stak­lega til ábyrgðar ráð­herra varð­andi upp­lýs­inga­gjöf til Alþing­is. Ákvæði 54. gr. stjórn­ar­skrár­innar tryggir þing­mönnum rétt til að óska upp­lýs­inga frá ráð­herr­um. Hefur ákvæðið verið talið fela í sér rétt þing­manna til fyr­ir­spurna og skýrslu­beiðna. Í því felst hins vegar ekki almenn upp­lýs­inga- og sann­leiks­skylda ráð­herra gagn­vart Alþingi. En frum­varpið kveð­ur á um að bætt verður við nýjum staf­lið við 10.gr laga um ráð­herra­á­byrgð:ef hann gefur Alþingi rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar eða leynir upp­lýs­ingum er hafa veru­lega þýð­ingu við með­ferð máls á Alþingi.

Alþingi náði ekki að rækja eft­ir­lits­hlut­verk sitt fyrir hrun

Ein af ábend­ingum í rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 var að Alþingi hefði ekki náð að rækja eft­ir­lits­hlut­verk sitt með hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins með öfl­ugum hætti. Undir þetta tók þing­manna­nefnd sem fjall­aði um skýrsl­una. Lögð var áhersla á að auka sjálf­stæði þings­ins gagn­vart fram­kvæmd­ar­vald­inu og m.a. lagt til að þing­skap­a­lög, lög um ráð­herra­á­byrgð og Lands­dóm yrðu end­ur­skoðuð með þetta að leið­ar­ljósi.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent