Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar lögð niður

Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar, fjármálaskrifstofa og skrifstofa þjónustu og reksturs verða lagðar niður þann 1. júní næstkomandi.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykjavíkur
Auglýsing

Skrif­stofa eigna og atvinnu­þró­un­ar, fjár­mála­skrif­stofa og skrif­stofa þjón­ustu og rekst­urs verða lagðar niður þann 1. júní næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg í dag.

Til­laga for­manns borg­ar­ráðs, Þor­dísar Lóu Þór­halls­dótt­ur, um stjórn­sýslu­breyt­ingar hjá Reykja­vík­ur­borg voru sam­þykktar í borg­ar­ráði í dag. Breyt­ing­arnar sem taka gildi 1. júní næst­kom­andi hafa það að meg­in­mark­miði að ein­falda, skýra og skerpa stjórn­ar­hætti og bæta þjón­ustu við borg­ar­búa, sam­kvæmt Reykja­vík­ur­borg. 

Til verða þrjú ný kjarna­svið, svið þjón­ustu og nýsköp­un­ar, svið mannauðs og starfs­um­hverfis og svið fjár­mála og áhættu­stýr­ing­ar.

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að inn­kaupa­ráð fái aukið hlut­verk auk þess sem starf reglu­varðar Reykja­vík­ur­borgar verði eflt. Með þessum breyt­ingum sé lögð áhersla á vand­aða, skil­virka fram­kvæmd og ákvarð­ana­töku ásamt skipu­legu og skýru eft­ir­liti.

Skrif­stofa eigna og atvinnu­þró­unar hefur farið með mál­efni eigna­sjóðs Reykja­vík­ur­borgar jafn­framt því að vinna að verk­efnum á sviði atvinnu­þró­un­ar. Á vef­síðu Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að skrif­stofu­stjór­inn sé Óli Jón Hertervig og heyri skrif­stofan undir emb­ætti borg­ar­rit­ara.

Skrif­stofan hefur verið í sviðs­ljós­inu und­an­far­ið, meðal ann­ars vegna aðkomu að fram­kvæmdum við end­ur­bygg­ingu á bygg­ing­unum við Naut­hóls­veg 100. Skrif­stofan sætti harðri gagn­rýni í skýrslu innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar sem birt var í des­em­ber síð­ast­liðn­um.

Þar komst innri end­ur­skoðun að því að skrif­stofa eigna og atvinnu­þró­unar hefði verið setta á „eins konar sjálf­stýr­ingu“ sem hefði bitnað á innra eft­ir­liti og verk­lagi skrif­stof­unn­ar. Þá var Hrólfur Jóns­son, þáver­andi skrif­stofu­stjóri, ekki sagður hafa fylgst með verk­efnum skrif­stof­unnar og ekki gefið upp­lýs­ingar um stöðu mála. Enn fremur hefði Hrólfur verið í miklum sam­skiptum við borg­ar­stjóra en ekki við sinn næsta yfir­mann sam­kvæmt skipu­riti, sem er borg­ar­rit­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent