Wow air hættir starfsemi

Flugfélagið Wow air hefur hætt starfsemi. Tilkynning þessa efnis birtist á vef félagsins upp úr klukkan átta í morgun.

Wow air
Auglýsing

Flug­fé­lag­ið Wow a­ir hefur hætt starf­sem­i. Til­kynn­ing þessa efnis birt­ist á vef félags­ins upp úr klukkan átta í morg­un. Öll flug félags­ins falla nið­ur. Far­þegum er bent á að kanna mögu­leika á flugi hjá öðrum flug­fé­lögum og að hafa sam­band við Sam­­göng­u­­stofu. 

Greint var frá því í nótt að öllu flugi hjá WOW a­ir hefði verið aflýst. Í til­­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu í nótt ­sagði að félag­ið væri á „loka­­metr­un­um“ með að klára fjár­­­fest­ingu og fá nýjan eig­enda­hóp að félag­in­u. Nú er hins vegar ljóst að það tókst ekki.

Auglýsing

Leið­bein­ingar til far­þega 

Sam­göngu­stofa hefur birt til­kynn­ingu á vef sínum um upp­lýs­ingar til far­þega WOW a­ir. Far­þegum er bent á að kanna mögu­leika á flugi hjá öðrum flug­fé­lög­um. Far­þegum sem keyptu flug­miða með kredit­korti er bent á að hafa sam­band við útgef­anda korts­ins til að kanna mögu­leika á að fá flug­mið­ann end­ur­greidd­an. 

Jafn­framt er far­þegum sem keyptu ferð­ina af evr­ópskum ferða­skipu­leggj­anda sem seldi flug­mið­ann sem hluta af svo­kall­aðri al­ferð bent á að þeir eigi rétt á heim­flutn­ingi á grund­velli sam­evr­ópskra reglna um al­ferð­ir. Far­þegum er bent á að hafa sam­band við þann ferða­skipu­leggj­anda sem þeir keyptu ferð sína af.

Í til­kynn­ing­unni segir að far­þegar kunni jafn­framt að eiga kröfu á hend­ur WOW a­ir , meðal ann­ars á grund­velli reglu­gerðar um rétt­indi flug­far­þega. „Þegar um gjald­þrot er að ræða þarf að lýsa slíkum kröfum í þrotabú flug­rek­and­ans.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent