Mueller fann tíu dæmi um mögulega hindrun á framgang réttvísinnar

Skýrsla Roberts Mueller verður afhend þingmönnum í Bandaríkjunum í dag. Á blaðamannafundi sagði dómsmálaráðherrann að Trump hefði tengst tíu atvikum sem mögulega hindruðu framgang réttvísinnar, en hann teldi sjálfur að fælu ekki í sér glæpi.

Rannsókn Mueller snérist að uppistöðu um hvort að Rússar hefðu beitt sér í forsetakosningunum 2016, sem Donald Trump vann.
Rannsókn Mueller snérist að uppistöðu um hvort að Rússar hefðu beitt sér í forsetakosningunum 2016, sem Donald Trump vann.
Auglýsing

Í skýrslu Robert Muell­er, sér­staks sak­sókn­ara, sem falið var að rann­saka mögu­leg ólög­mæt afskipti Rússa í banda­rísk stjórn­mál í for­seta­kosn­ing­unum 2016, kemur fram að sak­sókn­ar­inn og teymi hans taldi að Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefði átt aðkomu að tíu atvikum sem gætu flokk­ast sem mögu­legar til­raunir til að hindra fram­gang rétt­vís­innar vegna rann­sókn­ar­inn­ar.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi William Barr, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í dag en skýrsla Mueller verður birt að hluta í dag. Barr sagði að hinn sér­staki sak­sókn­ari hefði hins vegar ekki getað sýnt fram á spilltar hvatir for­set­ans við fram­kvæmd þeirra atvika, sem væri nauð­syn­legt til að atvikin telj­ist glæp­ir.

Á blaða­manna­fund­inum kom skýrt fram að Rússar hefðu skipt sér að fram­kvæmd kosn­ing­anna en engir Banda­ríkja­menn aðstoð­uðu vit­andi við það athæfi.

Auglýsing

Don­ald Trump sendi frá sér tíst á Twitter nán­ast á sama tíma og blaða­manna­fund­ur­inn hófst þar sem hann kom á fram­færi þeim skila­boðum sem hann telur að birt­ing skýrsl­unnar eigi að fela í sér.



Hvíta húsið hafði fengið að sjá hluta skýrsl­unnar áður en að hún verður afhent þing­mönnum banda­ríska þings­ins. Það vakti mikla reiði á meðal Demókrata sem ótt­uð­ust að Trump-­stjórnin myndi gera til­raunir til að grafa undan skýrsl­unni.

Á blaða­manna­fund­inum sagði Barr hins vegar að Hvíta húsið hefði ekki óskað eftir því að neitt yrði fjar­lægt eða hulið í skýrsl­unni áður en hún yrði afhent þing­mönn­um.

Um mán­uður er lið­inn frá því að Mueller skil­aði skýrslu sinni til Barr. Sá síð­ar­nefndi birti svo fjög­urra blað­síðna úrdrátt úr henni 24. mars síð­ast­lið­inn þar grein­t var frá því að Mueller hafi kom­ist að þeirri nið­ur­­­stöðu að fram­­boð Don­alds Trump Banda­­ríkja­­for­­seta hafi ekki átt í óeðli­­leg­um eða ólög­­mæt­um sam­­skipt­um við rús­s­­nesk stjórn­­völd í aðdrag­anda banda­rísku for­­seta­­kosn­­ing­anna 2016.

Í úrdrætt­inum kom líka fram að Barr teldi ekki ástæðu að ákæra fyrir að hindra fram­gang rétt­vís­inn­ar.

Hægt er að fylgj­ast með fram­vindu mála á heima­síðu Bloomberg.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent