Tíu sækjast eftir embætti May

Tvær kon­ur og átta karl­ar munu etja kappi um hver verður næsti leiðtogi Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráðherra Bret­lands. Theresa May steig til hliðar í síðustu viku en hún mun áfram gegna embættinu þar til að nýr formaður hefur verið skipaður.

Theresa May, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands.
Auglýsing

Þeir tíu fram­bjóð­endur sem freista þess að taka við sem for­maður breska Íhalds­flokks­ins og þar með­ ­for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hafa nú verið til­kynnt­ir. Í hópnum eru alls átta karlar og tvær kon­ur. Á meðal þeirra er Andr­ea ­Leadsom, sem laut í lægra haldi fyr­ir­ Ma­y í síð­asta for­manns­kjöri, og ­Boris John­son ­fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Frá þessu er greint á vef BBC.

Th­er­es­a Ma­y hætt­i for­m­­lega sem leið­togi Íhalds­­­flokks­ins á föst­u­dag­inn en hún mun hins veg­ar sitja áfram sem for­­sæt­is­ráð­herra þar til eft­ir­­maður henn­ar hef­ur verið skip­að­ur­. ­Fyrsta atkvæða­greiðslan fer fram á meðal þing­manna flokks­ins næst­kom­andi fimmtu­dag, þann 13. júní. Raðir atkvæða­greiðslna fara síðan fram á meðal þing­manna Íhalds­flokks­ins þar til fram­bjóð­end­unum hefur verið fækkað niður í tvo. Þá fá flokks­með­limir Íhalds­flokks­ins, um 160 þús­und manns, að kjósa á milli þeirra tveggja fram­bjóð­enda sem eftir standa og hefst sú at­­kvæða­greiðsla 22. júní. Mán­uði síðar tek­ur nýr leið­togi við emb­ætti for­­manns flokksins.

Auglýsing

Þeir tíu íhalds­menn sem etja kappi um hver verður næsti leið­togi Íhalds­­­flokks­ins og for­­sæt­is­ráð­herra Bret­lands eru eft­ir­far­andi.

  • Michael ­Gove, umhverf­is­ráð­herra í stjórn Ther­esu May
  • Matt Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra
  • Mark Harper, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður og ráð­herra
  • Jer­emy Hunt, utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Ther­esu May
  • Sajid Ja­vid, inn­an­rík­is­ráð­herra í stjórn Ther­esu May
  • Boris John­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra
  • Andr­ea ­Leadsom, fyrr­ver­andi leið­togi neðri deildar breska þings­ins
  • Esther McVey, fyrr­ver­andi atvinnu- og eft­ir­launa­ráð­herra
  • Dom­in­ic Raab, fyrr­ver­andi ráð­herra Brex­it-­mála
  • Ror­y ­Stewart, þró­un­ar­ráð­herra

Nýr for­maður Íhalds­flokks­ins tekur við kefl­inu í Brex­it við­ræð­unum en frest­ur­inn til að ná sam­komu­lagi um for­sendur útgöng­unnar var fram­lengdur fram í októ­ber á þessu ári. Skiptar skoð­anir eru meðal fram­bjóð­end­anna tíu um hvernig best sé að haga útgöng­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent