Nú má spila bingó á föstudaginn langa

Alþingi samþykkti í gær að fella niður ákvæði í lögum um helgidagafrið sem bannar tiltekna þjónustu, skemmtanir og afþreyingu á tilgreindum helgidögum þjóðkirkjunnar. Á meðal þess sem bannað var í lögunum var að standa fyrir bingó á helgidögum.

Fólk situr úti við Ingólfstorg
Auglýsing

Alþingi sam­þykkti í gær frum­varp um breyt­ingar á lögum um helgi­daga­frið. Frum­varpið kveður á um að felld verði niður ákvæði í lögum um helgi­daga­frið sem banna til­tekna þjón­ustu, skemmt­anir og afþr­ey­ingu á til­greindum helgi­dögum þjóð­kirkj­unn­ar. Alls greiddu níu þing­menn gegn frum­varp­inu, allt þing­menn Mið­flokks­ins.  

Verður hver að fá gera með sínu lagi

Sig­ríðar Á. And­er­sen, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram frum­varpið en þing­flokkur Pírata hafði tvisvar áður lagt fram frum­varp þess efn­is. Sam­kvæmt vef Alþingis er mark­miðið með lög­unum að auka frelsi til atvinnu­rekstrar á helgi­dögum þjóð­kirkj­unnar og koma til móts við þá sem njóta vilja þjón­ustu og afþrey­ingar á þessum dög­um.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd: Bára Huld BeckÍ Face­book-­færslu Sig­ríðar um sam­þykkt frum­varps­ins segir að nú hafi ver­ið hrundið úr vegi síð­ustu hindr­unum við að veita og njóta þjón­ustu á til­greindum helgi­dögum þjóð­kirkj­unn­ar. „Ég lagði á það áherslu í fram­sögu­ræðu minni að með frum­varp­inu væri ekki stefnt að því að draga úr vægi helgi­daga­friðs. Umræddir dagar eru hluti af okkar kristnu arf­leifð og þess er sjálf­sagt að minn­ast er þeir renna upp. Það verður hins vegar hver að fá að gera með sínu lagi. Sá friður sem æski­legt er að ríki þessa daga sem aðra er einkum innri friður hvers og eins okk­ar. Sú ró verður ekki fengin með lög­um,“ segir Sigríður.

Auglýsing

Bingó sér­stak­lega bann­að 

Í lögum um helgi­dag segir að á helgi­dögum sé eft­ir­fr­andi starf­semi óheim­il; skemmt­an­ir, svo sem dans­leikir eða einka­sam­kvæmi á opin­berum veit­inga­stöðum eða á öðrum stöðum sem almenn­ingur hefur aðgang að. Hið sama gildir um opin­berar sýn­ingar og skemmt­anir þar sem happ­drætti, bingó eða önnur svipuð spil fara fram. Auk þess eru mark­aðir og versl­un­ar­starf­semi, svo og önnur við­skipta­starf­semi óheim­il. Ákveð­in ­starf­semi er þó und­an­þegin bann­inu þar á meðal starf­semi lyfja­búða og bens­ín­stöðv­a. 

Sam­kvæmt lög­unum eru helgi­dagar þjóð­kirkj­unn­ar, sunnu­dag­ar, annar dagur jóla, nýárs­dag­ur, skír­dag­ur, annar dagur páska, upp­stign­ing­ar­dagur og annar dagur hvíta­sunnu. Auk þess föstu­dag­ur­inn langi, páska­dagur , hvíta­sunnu­dagur og aðfanga­dagur jóla frá kl. 18.00 og jóla­dagur til kl. 6.00 að morgni næsta dags

Félag­ið Van­trú er meðal þeirra sem gagn­rýnt hafa lögin en félagið hefur staðið fyr­ir­ ár­legu ólög­legu bingó Van­trúar á föstu­dag­inn langa. „Það er auð­vitað öllum í sjálfs­vald sett að spila ekki bingó og gera ekki neitt skemmti­legt af trúar­á­stæðum en það er rangt að þvinga alla til að fara að því," sagði Sindri Guð­jóns­son, for­maður Van­trú­ar, í sam­tali við Vísir í fyrra. 

Nú er hins vegar ekki lengur bannað að bjóða upp­ til­tekna þjón­ustu, skemmt­anir og afþr­ey­ingu á til­greindum helgi­dögum þjóð­kirkj­unn­ar, en áfram verður þó óheim­ilt að trufla guðs­þjón­ust­u, ­kirkju­leg­ar ­at­hafnir eða annað helgi­hald með hávaða eða öðru því sem and­stætt er helgi við­kom­andi athafnar sam­kvæmt lög­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent