Óskar eftir fundi með dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun

Umboðsmaður barna hefur sent bréf til dómsmálaráðherra og forstjóra Útlendingastofnunar þar sem hann óskar eftir fundi hið fyrsta til að fara yfir mál barna sem endursenda á til Grikklands þar sem fjölskyldunum hefur verið veitt alþjóðleg vernd.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Auglýsing

Sal­vör Nor­dal, umboðs­maður barna, hefur óskað eftir fundi hið fyrsta með dóms­mála­ráð­herra og for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar til að fara yfir mál barna sem end­ur­senda á til Grikk­lands þar sem fjöl­skyld­unum hefur verið veitt alþjóð­leg vernd

Umboðs­maður óskar eftir því að á fund­inum verði farið yfir for­sendur þeirrar ákvörð­unar að halda áfram end­ur­send­ingum fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í  Grikk­landi og þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun búa yfir um aðstæður barna og fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

Þörf á að taka til skoð­unar með­ferð þess­ara mála

Í bréfi umboðs­manna barna, sem dag­sett er 3. júlí 2019, til dóms­mála­ráð­herra og for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar segir að umboðs­maður barna óski einnig eftir því að ræða fyr­ir­komu­lag þjón­ustu við börn og fjöl­skyldur þeirra hér á landi á meðan umsókn sé til með­ferð­ar, með­ferð umsókna og máls­með­ferð­ar­tíma. Auk þess vill umboðs­maður ræða hvort að dóms­mála­ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun telji þörf á að taka til skoð­unar með­ferð þess­ara mála með hlið­sjón af samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins ásamt öðrum alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands á sviði mann­rétt­inda. 

Auglýsing

Jafn­framt segir í bréf­inu að á heima­síðu Útlend­inga­stofn­unar komi fram að end­ur­send­ingum hæl­is­leit­enda til Grikk­lands hafi verið hætt árið 2010 þar sem aðstæður í gríska hæl­is­kerf­inu hafi verið taldar ófull­nægj­andi. Þá komi þar einnig fram að end­ur­send­ingum þeirra sem fengið hafa alþjóð­lega vernd í lönd­unum tveimur hafi ekki verið hætt þar sem þeir ein­stak­lingar hafi fengið útgefin dval­ar­leyfi og fari því ekki í gengum hæl­is­kerfið þar í land­i. 

„Með hlið­sjón af því óskar umboðs­maður barna eftir því að á fund­inum verði farið yfir for­sendur þeirrar ákvörð­unar að halda áfram end­ur­send­ingum fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í  Grikk­landi og þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun búa yfir um aðstæður barna og fjöl­skyldna sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­land­i,“ segir að lokum í bréf­inu

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent