Ríki og borg hækka framlög til Bíó Paradísar um 26 milljónir

Framlag ríkis og borgar hækkar samtals um 26 milljónir á ári í uppfærðum samstarfssamningi við Heimili kvikmyndanna, rekstraraðila Bíós Paradísar. Stefnt er að því að opna bíóið um miðjan september en þá fagnar Bíó Paradís tíu ára afmæli.

Bíó Paradís
Auglýsing

Bíó Para­dís mun hefja starf­semi sína að nýju í haust en sam­starfs­samn­ingur Heim­ila kvik­mynd­anna, rekstr­ar­að­ila Bíós Para­dís­ar, við ríki og borg hefur verið upp­færð­ur. Ríki og borg munu hvort um sig hækka fram­lag sitt til Heim­ila kvik­mynd­anna um 13 millj­ónir á ári. Þetta segir Arna Schram, sviðs­stjóri menn­ing­ar- og ferða­mála­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, í sam­tali við Kjarn­ann. 



Í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu segir að kvik­mynda­húsið hafi verið lokað um nokk­urt skeið vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og vegna óvissu um leigu á hús­næði, óvissu sem nú hefur verið eytt.

Auglýsing



„Vegna aðstæðna þurfti Bíó Para­dís að segja upp öllu starfs­fólki síð­ast­liðið vor, en þá höfðu aðilar ekki náð saman um leigu­kjör og nauð­syn­legar end­ur­bætur og við­hald hús­næð­is­ins til lengri tíma. Það hefur nú tekist, eftir að máls­að­ilar slógu af ítr­ustu kröfum sínum og mætt­ust á miðri leið,“ segir í til­kynn­ing­unni. Leigu­verðið mun því hækka en ekki jafn mikið og til stóð í upp­hafi.



Stefnt er að því að opna Bíó Para­dís um miðjan sept­em­ber næst­kom­andi. Þá verða liðin tíu ár frá því að bíóið hóf starf­semi sína. Áherslan hefur verið lögð á að sýna nýjar kvik­myndir frá öllum heims­hornum auk eldri mynda, bæði inn­lendra og erlendra. Bíóið hefur auk þess staðið fyrir fjöl­breyttum kvik­mynda­tengdum við­burðum og hýst kvik­mynda­há­tíð­ir.



„Við erum með þessu að tryggja að Bíó Para­dís sinni áfram þeirri mik­il­vægu menn­ing­ar­starf­semi sem hún hefur sinnt und­an­farin ára­tug. Bíóið er sann­kölluð vagga kvik­mynda­menn­ingar í Reykja­vík og á land­inu öllu. Þá er ótrú­lega mik­il­vægt að Hverf­is­gatan verði áfram heim­ili kvik­mynd­anna og haldi áfram að sjá kvik­mynda­þyrstum gestum fyrir fjöl­breyttu fram­boði af alls­konar bíó­myndum frá öllum heims­horn­um,“ er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent