Telja áhrif þess að afnema stimpilgjald af íbúðarhúsnæði óveruleg

Átta þingmenn Sjálfstæðisflokks lögðu í síðasta mánuði fram frumvarp um afnám stimpilgjalda. Það er í sjötta sinn sem frumvarpið er lagt fram. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun telur afnámið líklegt til að hækka íbúðarverð.

Byggingarsvæði
Auglýsing

Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun telur stimp­il­gjald vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði vera til­tölu­lega hóf­legt hér­lendis í sam­an­burði við önnur lönd og að áhrifin af afnámi gjalds­ins yrðu því „lík­ast til óveru­leg“. 

Þetta kemur fram í umsögn stofn­un­ar­innar um end­ur­flutt frum­varp átta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins um afnám gjalds­ins. Þetta er í sjötta sinn sem frum­varpið er lagt fram.

Ein­stak­lingum ber nú almennt að greiða 0,8 pró­sent stimp­il­gjald vegna kaupa á íbúð­ar­hús­næði en þó er veittur helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Í stuttri grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi þing­mann­anna segir að mark­mið þess sé að auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næðis og auka skil­virkni og flæði á mark­aði með íbúð­ar­hús­næði. „Sýnt þykir að stimp­il­gjald hafi áhrif til hækk­unar fast­eigna­verðs, dragi úr fram­boði og rýri hlut kaup­enda og selj­enda. Af fram­an­greindu má ætla að afnám stimp­il­gjalds af fast­eigna­við­skiptum muni auð­velda verð­myndun á hús­næð­is­mark­aði með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­boði sem hefur verið með minnsta móti und­an­farin ár.“

Auglýsing
Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun er ekki sam­mála þess­ari fram­setn­ingu að öllu leyti og vísar í umsögn Íbúða­lána­sjóðs, sem síðar rann inn í stofn­un­ina, frá árinu 2018 því til stuðn­ings. Í umsögn Íbúða­lána­sjóðs var farið yfir mögu­leg áhrif af afnámi stimp­il­gjalds­ins og vísað í rann­sóknir þess efn­is. Þar sagði að ekki væri víst að mark­mið frum­varps­ins, að auð­velda fólki að eins og frekast er unnt að eign­­ast íbúð­­ar­hús­næði, muni nást með aðgerð­inni þar sem að íbúð­ar­verð gæti þvert á móti hækkað vegna afnáms gjalds­ins. 

Til þess að ná því mark­miði væri mark­vis­s­­ara að útvíkka þann afslátt sem nú gildir um stimp­il­­gjald vegna fyrstu kaupa, ýmist með því að auka hann enn frekar eða með því að veita vissum félags­­hóp­um, sem nú eiga sér­­stak­­lega erfitt með að kom­­ast inn á fast­­eigna­­mark­að, sér­­stakan afslátt. Í umsögn Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar ný segir að hún ítreki fyrri umsögn.

Þar segir þó einnig að einn helsti ábati afnáms stimp­il­gjalds sé að minnka kostn­að­inn fyrir heim­ili við það að skipta um hús­næði og að það geti sér­stak­lega haft áhrif á eldri borg­ara sem vilja minnka við sig og yngri fjöl­skyldur sem vilja stækka við sig. „Því má segja að afnám gjalds­ins sé lík­legt til að hafa í för með sér sam­fé­lags­legan ábata. Hins vegar verður stimp­il­gjald ein­stak­linga hér á landi, í sam­an­burði við önnur lönd, að telj­ast til­tölu­lega hóf­legt og áhrifin af afnámi gjalds­ins því lík­ast til óveru­leg.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent