Icelandair upp um sjö prósent

Verð á bréfum í Icelandair hækkaði um tæp sjö prósent í Kauphöllinni í dag, tveimur dögum eftir að jákvæðar fréttir bárust fyrir flugvélaframleiðandann Boeing.

Stór kaup á Boeing 737-MAX vélum, líkt og Icelandair á, áttu sér stað um helgina.
Stór kaup á Boeing 737-MAX vélum, líkt og Icelandair á, áttu sér stað um helgina.
Auglýsing

Gengi hluta­bréfa í Icelandair Group hækk­aði lang­mest allra fyr­ir­tækj­anna í Kaup­höll­inni í dag, eða um 6,96 pró­sent. Hækk­unin kemur í kjöl­far frétta um að lággjalda­flug­fé­lagið Ryanair hafi fest stór­kaup á 737-MAX vélum hjá flug­véla­frama­leið­and­anum Boeing síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Verð á hlutum í flug­fé­lag­inu hefur nær tvö­fald­ast á einum mán­uði.

Rúmur fjórð­ungur allra við­skipta sem áttu sér stað í Kaup­höll­inni í dag voru í Icelanda­ir, en þau náðu um 641 milljón króna við lokun mark­aða. Gengi flug­fé­lags­ins hækk­aði úr 1,64 í 1,69 og hefur það ekki verið jafn­hátt síðan um miðjan ágúst­mán­uð. Á einum mán­uði hafa hluta­bréf í félag­inu hækkað um tæp 90 pró­sent, en verð á hlutum í flug­fé­lag­inu fór lægst í 0,89 í byrjun nóv­em­ber.

Mbl.is greindi frá kaupum Ryanair á vél­unum um helg­ina, en sam­kvæmt þeirri frétt er þetta fyrsta stóra pönt­unin á þeim síðan ákveðið var að leggja þeim í 20 mán­uði vegna gruns um að vél­ar­bilun hafi valdið tveimur flug­slysum sem kost­uðu 346 manns líf­ið. 

Auglýsing

Þess­ar frétt­ir, ásamt vel heppn­uðu prufuflugi hjá Amer­ican Air­lines, urðu til þess að hluta­bréf í flug­­­véla­fram­­leið­and­an­um Boeing hafa hækkað nokkuð á und­an­förnum dög­um. Stutt er í að vél­arnar geti farið aftur í loft­ið, en þær fengu aftur flug­leyfi frá banda­rísk­um flug­­­mála­yf­­ir­völd­um í síð­asta mán­uð­i. 

Icelanda­ir ger­ir svo ráð fyr­ir því að MAX-­vél­­arn­ar verði hluti af áætl­­un flug­­­fé­lags­ins næsta vor, sam­kvæmt fjár­festa­til­kynn­ingu þeirra við síð­asta hluta­fjár­út­boð.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent