„Allt útlit fyrir“ að kísilverið í Helguvík verði ekki gangsett á ný

Arion banki og PCC hafa slitið viðræðum um möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Einnig hefur Arion sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun, þar sem framleiðsla kísils var forsenda samningsins.

Kísilverksmiðjan í Helguvík verður líklega flutt, eða fundið nýtt hlutverk, samkvæmt tilkynningu Arion banka.
Kísilverksmiðjan í Helguvík verður líklega flutt, eða fundið nýtt hlutverk, samkvæmt tilkynningu Arion banka.
Auglýsing

Arion banki og PCC hafa slitið form­legum við­ræðum um mögu­leg kaup PCC á kís­il­verk­smiðj­unni í Helgu­vík. Sam­hliða hefur Arion banki sagt upp raf­orku­samn­ingi við Lands­virkjun þar sem fram­leiðsla kís­ils var for­senda samn­ings­ins. Frá þessu segir Arion banki í frétta­til­kynn­ingu í dag.

„Því er allt útlit fyrir að kís­il­verk­smiðjan í Helgu­vík verði ekki gang­sett á ný og að hún verði flutt eða henni fært nýtt hlut­verk,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans. Þar er haft eftir Bene­dikt Gísla­syni banka­stjóra að saga kís­il­vers­ins í Helgu­vík sé vel þekkt, en bank­inn telji nú full­reynt að þar verði rekið kís­il­ver.

Bank­inn eign­að­ist verk­smiðj­una árið 2018 í kjöl­far gjald­þrots fyrri eig­anda, United Sílicon hf. Stakks­berg ehf., dótt­ur­fé­lag Arion banka hefur á und­an­förnum miss­erum gert til­raunir til að finna kaup­endur að verk­smiðj­unni, en þær til­raunir hafa nú runnið út í sand­inn.

Auglýsing

Sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu Arion banka gerð­ist það í kjöl­far þess að PCC kynnti áform sín fyrir hag­að­il­um, en nið­ur­staða þeirrar vinnu var að PCC teldi ekki grund­völl fyrir áfram­hald­andi við­ræðum um kaup félags­ins á verk­smiðj­unni.

„Bank­inn telur full­reynt að þarna verði rekin kís­il­verk­smiðja“

Í til­kynn­ingu bank­ans er haft eftir Bene­dikt að bank­inn hafi litið á það sem skyldu sína að „reyna til þrautar að nýta þá inn­viði og þau verð­mæti sem þarna hefur verið fjár­fest í“.

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka. Mynd: Arion

„Þar höfum við horft til allra hag­að­ila, ekki síst íbúa Reykja­nes­bæjar sem urðu fyrir óþæg­indum á þeim stutta tíma sem verk­smiðjan var starf­rækt. Við unnum metn­að­ar­fulla end­ur­bóta­á­ætlun á verk­smiðj­unni sem fór í gegnum umhverf­is­mat og leit­uðum að rekstr­ar­að­ila með nauð­syn­lega þekk­ingu og getu til að starf­rækja verk­smiðj­una á umhverf­is­vænan máta, í sátt við sam­fé­lag­ið. Bank­inn telur full­reynt að þarna verði rekin kís­il­verk­smiðja og því tekur við nýr kafli sem miðar að því að flytja verk­smiðj­una eða færa henni nýtt hlut­verk,“ er haft eftir Bene­dikt.

Við­ræður komnar í gang við nokkra aðila

„Í kjöl­far þess­arar nið­ur­stöðu mun Arion banki horfa til sölu á þeim innviðum sem eru til staðar í Helgu­vík, annað hvort til flutn­ings eða með það að mark­miði að koma þar upp ann­ars konar starf­semi en kís­ilfram­leiðslu,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Arion banka.

Þar segir jafn­framt frá því að við­ræður séu „þegar í gangi við nokkra aðila, inn­lenda og erlenda, í þessu sam­band­i“.

Þess er getið að ákvörð­unin hafi ekki áhrif á bók­fært verð­mat eign­ar­inn­ar, en það verði svo end­ur­metið með hlið­sjón af þróun þeirra við­ræðna sem standa yfir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent