„Alveg galið“ að vísa fólkinu úr landi

Það er „óboðlegt“ að stjórnvöld elti uppi hælisleitendur til að vísa þeim úr landi þegar niðurstaða kærunefndar í málum þeirra „er rétt handan við hornið“. Þrír hælisleitendur, sem dvalið hafa á Íslandi frá upphafi faraldursins, hafa verið handteknir.

Í hopnum sem vísa á úr landi eru m.a. Palestínumenn sem hér hafa dvalið lengi.
Í hopnum sem vísa á úr landi eru m.a. Palestínumenn sem hér hafa dvalið lengi.
Auglýsing

„Þetta er algjör­lega óboð­leg­t,“ segir lög­mað­ur­inn Magnús Davíð Norð­dahl um að unnið sé að því að koma hópi umbjóð­enda hans úr landi, aðeins nokkrum dögum áður en afstaða stjórn­valda til end­ur­upp­töku­beiðna í vernd­ar­málum þeirra liggi fyr­ir.

­Þrír umsæk­endur um alþjóð­lega vernd sem eru í hópi skjól­stæð­inga Magn­ús­ar, hafa verið hand­tekn­ir, þeir úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald og er haldið í fang­els­inu á Hólms­heiði. Mál þeirra allra og tuga til við­bótar eru að mati Magn­úsar sam­bæri­leg máli hæl­is­leit­enda sem dómur féll í um miðjan októ­ber. Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var sú að óheim­ilt hefði verið að synja honum um end­ur­upp­töku máls síns vegna ásak­ana um taf­ir. „Núna, þegar liðnir eru um tvær vikur frá því að kröfur um end­ur­upp­töku mála ann­arra í sam­bæri­legri stöðu voru sendar stjórn­völd­um, og svar vænt­an­legt á allra næstu dög­um, þá er lög­reglan að leita að þessu fólki. Og þrír af okkar umbjóð­endum eru í gæslu­varð­haldi nún­a.“

Auglýsing

Magnús átti fundi með umbjóð­endum sínum í fang­els­inu í morg­un. Lög­reglan krafð­ist gæslu­varð­halds þar sem hún taldi hættu á því að þeir myndu flýja áður en að fram­kvæmd brott­vís­unar kæmi. Hér­aðs­dómur féllst á þær rök­semdir en Magnús hefur vísað mál­inu til Lands­rétt­ar. Áður en nið­ur­staða hans liggur fyrir telur má telja lík­legt að búið verði að flytja menn­ina úr landi í lög­reglu­fylgd.

Algjör­lega óboð­legt

„Í stað þess að stjórn­völd bíði eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar [út­lend­inga­mála] sem er vænt­an­leg á allra næstu dögum að þá er drifið í því, og eytt fjár­munum og mann­afla í það, að elta uppi og færa úr landi aðila sem mögu­lega eiga eftir að fá mál sín end­ur­upp­tek­in,“ segir Magn­ús. „Af hverju bíða stjórn­völd ekki eftir nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­beiðn­anna? Þetta er algjör­lega óboð­leg­t.“

Magnús Norðdahl lögmaður.

Fólkið sem vísa á úr landi á það sam­eig­in­legt að hafa sótt hér um vernd skömmu fyrir eða í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um. Á meðan hann stóð voru eins og allir muna settar á harðar ferða­tak­mark­anir og á löngu tíma­bili var engum vísað úr landi. Fólk­ið, sem m.a. er á flótta frá Palest­ínu, ílengd­ist því hér. Stjórn­völd sök­uðu það margt hvert um að hafa tafið mál sín m.a. með því að hafna því að fara í COVID-­próf.

Einn palest­ínski hæl­is­leit­and­inn fór í mál við ríkið og í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms sagði m.a.: „Að öllu fram­an­greindu virtu telur dóm­ur­inn að ekki hafi verið rétt­mætt að leggja til grund­vallar að stefn­andi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á með­ferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutn­ingi hans innan 12 mán­aða frests­ins. Var úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála að þessu leyti byggður á efn­isann­marka sem telst veru­leg­ur. Þegar af þeirri ástæðu verður fall­ist á kröfu stefn­anda um að ógiltur verði úrskurður nefnd­ar­innar frá 18. nóv­em­ber 2021 þar sem synjað var beiðni hans um end­ur­upp­töku máls­ins.“

Mestu fjölda­brott­vís­anir Íslands­sög­unnar

Helgi Þor­steins­son lög­maður sótti málið fyrir Palest­ínu­mann­inn og taldi líkt og Magnús að dóm­ur­inn væri for­dæm­is­gef­andi fyrir þann fjöl­menna­hóp hæl­is­leit­enda sem ílengd­ist hér vegna far­ald­urs­ins. „Að fengnum dómnum er ljóst að stjórn­völdum er ekki stætt á öðru en að bregð­ast við og koma í veg fyrir mestu fjölda­brott­vís­anir Íslands­sög­unn­ar,“ sagði Helgi við Kjarn­ann er dóm­ur­inn féll í októ­ber.

Í kjöl­far dóms­ins seg­ist Magnús hafa átt von á því að stjórn­völd yrðu fljót að afgreiða end­ur­upp­töku­beiðnir í öðrum sam­bæri­legum mál­um. Auk þeirra voru sendar sér­stakar beiðnir til Útlend­inga­stofn­unar og stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um frestun fram­kvæmda. Að beðið yrði með að vísa fólk­inu úr landi þar til kæru­nefnd útlend­inga­mála hefði fjallað um end­ur­upp­töku­beiðn­irn­ar.

Engin svör bár­ust.

Auglýsing

„Með hlið­sjón af dómnum sem féll, og að fram­kvæmdin er mjög sam­bæri­leg frá máli til máls, þá er þetta nátt­úr­lega alveg galið,“ segir Magnús um stöð­una nú, „al­veg sama hvaða mæli­kvarða þú setur á það.“

Stjórn­völd hafa ekki áfrýjað dómi hér­aðs­dóms en frestur til slíks er ekki útrunn­inn. Kæru­nefnd hefur ekki enn tekið afstöðu til end­ur­upp­töku­beiðn­anna. Þannig liggur að mati Magn­úsar ekki enn fyrir hvort að stjórn­völd, sem kæru­nefnd er hluti af, túlki nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms með sama hætti og hann og Helgi, þ.e. að málið sé for­dæm­is­gef­andi og að hópur hæl­is­leit­enda eigi rétt á að fá mál sín tekin upp að nýju og til efn­is­með­ferð­ar.

Ekk­ert gert fyrr en dómur lá fyrir

Mán­uðum saman hafi lög­reglan engin afskipti haft af fólk­inu. En svo allt í einu, eftir að dómur sem lög­menn telja for­dæm­is­gef­andi er kveð­inn upp, og end­ur­upp­töku­beð­inir sendar stjórn­völd­um, fer lög­reglan að „leita að mönn­un­um“ eins og Magnús orðar það, í þeim til­gangi að vísa þeim úr landi, senda þá til Grikk­lands þar sem aðstæður fyrir fólk á flótta eru erf­iðar og jafn­vel hættu­leg­ar.

Stjórn­völdum ber ekki lögum sam­kvæmt að bíða eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála. En líkt og Helgi orðar það er ráð­ist í lög­reglu­að­gerðir þegar nið­ur­staða um end­ur­upp­töku „er rétt handan við horn­ið“.

Tapar eng­inn á því að bíða

Allir sem þarna eru undir eiga að okkar mati rétt á efn­is­með­ferð, segir Magn­ús. En stjórn­völd séu ekki einu sinni búin að svara því hvort þau eru sam­mála. „Það tapar eng­inn á því að bíða í nokkra daga.“

Magnús og Helgi hafa ekki fengið svör um hvenær nákvæm­lega skjól­stæð­ingar þeirra verða fluttir í lög­reglu­fylgd úr landi en telja að það ger­ist síðar í þess­ari viku.

Jafn­vel á morg­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent