Fjárfestingafélag Samherja kaupir Landsbankahúsið á Akureyri

Fjárfestingafélagið Kaldbakur bauð hæst í Landsbankahúsið á Akureyri. Kaupverðið nemur 685 milljónum króna.

Landsbankahúsið á Akureyri var tekið í notkun árið 1954.
Landsbankahúsið á Akureyri var tekið í notkun árið 1954.
Auglýsing

Kald­bak­ur, fjár­fest­inga­fé­lag sem heldur utan um eignir útgerð­ar­fé­lags­ins Sam­herja, hefur keypt Lands­banka­húsið á Akur­eyri, sem bank­inn aug­lýsti til sölu fyrir um mán­uði síð­an. Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu á vef Sam­herja, en þar kemur fram að Kald­bakur hafi átt hæsta boð í húsið – eða 685 millj­ónir króna.

Í til­kynn­ingu á vef Sam­herja er haft eftir Eiríki S. Jóhanns­syni fram­kvæmda­stjóra Kald­baks, sem einnig er stjórn­ar­for­maður Sam­herja, að Kald­bakur vilji leggja sitt af mörkum til að varð­veita Lands­banka­hús­ið, sem tekið var í notkun árið 1954, og glæða það frekara lífi í fram­tíð­inni. Húsið er um 2.400 fer­metrar og voru fyrstu til­lögu­upp­drættir að bygg­ing­unni gerðar af Guð­jóni Sam­ú­els­syni, fyrr­ver­andi húsa­meist­ara rík­is­ins, en að honum látnum tók Bárður Ísleifs­son við verk­inu og kláraði hönnun húss­ins.

Auglýsing

„Við erum vel með­vituð um upp­haf­lega til­lögu­upp­drætti Guð­jóns Sam­ú­els­sonar sem sýna húsið bæði hærra og stærra. Við munum skoða þessi mál í fram­hald­inu, þannig að nýt­ing húss­ins verði sem best og sómi þess og bæj­ar­prýði verði sem mest. Okkar sann­fær­ing er að Akur­eyri komi til með að vaxa og dafna á kom­andi árum sem mið­stöð búsetu, menn­ingar og atvinnu­lífs á Norð­ur­landi og sem helsta þétt­býli utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Kaupin á Lands­banka­hús­inu veitir Kald­baki kær­komið tæki­færi til að taka þátt í upp­bygg­ingu mið­bæj­ar­ins og styrkja þannig mik­il­vægt hlut­verk Akur­eyr­ar. Þess vegna er um að ræða góða fjár­fest­ingu sem er jú megin ástæða þess­ara kaupa,“ er haft eftir Eiríki í til­kynn­ing­unni á vef Sam­herja.

Þar er einnig haft eftir Lilju Björk Ein­ars­dóttur banka­stjóra Lands­bank­ans að húsið sé mikil bæj­ar­prýði og hafi reynst bank­anum vel, en að tals­vert sé síðan að það var orðið of stórt fyrir starf­semi bank­ans í Akur­eyr­ar­bæ.

„Okkur líst því vel á áform nýrra eig­enda um að glæða húsið nýju lífi og mögu­leik­arnir eru svo sann­ar­lega til stað­ar,“ er haft eftir Lilju Björk í til­kynn­ing­unni. Starf­semi bank­ans verður áfram í hús­inu um tíma, en Lands­bank­inn er svo byrj­aður að líta í kringum sig eftir nýju fram­tíð­ar­hús­næði á Akur­eyri.

Krist­ján Vil­helms­son á bak við kaup Lands­banka­húss­ins á Sel­fossi

Ekki er langt um liðið frá því að annað hús sem áður var í eigu Lands­bank­ans var selt til aðila með tengsl við norð­lenska útgerð­ar­fé­lag­ið, en árið 2020 var hús­eign bank­ans við Aust­ur­veg á Sel­fossi aug­lýst til sölu.

Kaup­and­inn var Sigtún þró­un­ar­fé­lag, sem einnig hefur staðið á bak við upp­bygg­ingu nýs mið­bæjar á Sel­fossi. Annar tveggja stærstu eig­enda þess félags er Krist­ján Vil­helms­son, einn af tveimur fyrr­ver­andi aðal­eig­endum Sam­herja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent