Átjándu aldar morðsaga af Austurlandi – Morðið í Naphornsklettum

„Þetta er stórmerkileg saga sem lét mig ekki í friði,“ segir Ásgeir Hvítaskáld, sem ritað hefur skáldsögu sem byggir á sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað austur á fjörðum undir lok 18. aldar.

Naphorn er á milli Berufjarðar og Breiðdalsvíkur.
Naphorn er á milli Berufjarðar og Breiðdalsvíkur.
Auglýsing

Ásgeir Hvíta­skáld hefur skrifað skáld­sögu sem byggir á sann­sögu­legum atburð­um, um morðið í Naphorni og síð­ustu aftök­una á Aust­ur­landi 1786. Söfnun fyrir útgáf­unni stendur yfir á Karol­ina Fund.

Ásgeir Hvítaskáld er höfundur bókarinnar.

„Þetta er stór­merki­leg saga sem lét mig ekki í frið­i,“ segir Ásgeir, sem lýsir sög­unni sem átak­an­legri.

„Fyrst sá ég kynn­ing­ar­skilti um sög­una á Mjó­eyr­inni á Eski­firði, en þar var þessum dreng lýst sem lötum og vondum dreng. Þá hugs­aði ég að það væri ekki hægt að skrifa sögu þar sem aðal­per­sónan væri vond. Þetta var ein hrotta­leg­asta aftaka sem farið hefur fram á Íslandi, þar sem 23 ára gam­all, ólæs, fáfróður og ein­faldur drengur var háls­höggv­inn. Notuð var bit­laus exi svo höggva þurfti sjö sinnum áður en höf­uðið fauk af búkn­um,“ segir Ásgeir.

Auglýsing

Síðar seg­ist Ásgeir hafa rek­ist á aðra útgáfu af sög­unni sem var öðru­vísi og sá þá efni­við í sína eigin skáld­sögu um atburð­ina. „Þegar ég las að böð­ull­inn hefði neitað að höggva dreng­inn, þá sá ég mögu­leika í sög­unni og skrif­aði mína eigin útgáfu,“ segir Ásgeir.

„Þetta er örlaga­drama um þrjá drengi sem struku úr vist­ar­böndum og áttu sér draum um frelsi á fjöllum en draum­ur­inn sner­ist upp í svik og hrylli­legt morð. Það var gíf­ur­leg fátækt og hung­ursneyð í land­inu en þema sög­unnar fjallar um vist­ar­böndin sem danski kon­ung­ur­inn setti á. Þau voru nán­ast þrælkun fyrir lands­menn og hent­uðu Íslend­ingum illa. Ef bú var minna virði en þrjú kúgildi þá var fjöl­skyldan leyst upp og fólkið þurfti að vinna í ánauð á öðrum sveita­bæj­um. Sagan fjallar um allt órétt­lætið sem danska rétt­ar­kerfið beitti Íslend­inga fyrr á öld­um. En samt þrífst ástin í hjörtum mann­anna,“ segir Ásgeir.

Söfnun fyrir útgáfu bók­ar­innar stendur nú yfir, sem áður seg­ir, á Karol­ina Fund.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk