ÁTVR og Reitir hafa ekki náð saman og „ólíklegt“ að það verði Vínbúð á Fiskislóð

Samningaviðræður ÁTVR um að taka húsnæði í eigu Reita við Fiskislóð 10 á leigu undir Vínbúð hafa ekki skilað árangri. Atvinnuhúsnæðið, sem er í eigu Reita, hefur verið auglýst til leigu á fasteignavefjum.

Ólíklegt er að Vínbúð opni á Fiskislóð 10 á Granda, samkvæmt aðstoðarforstjóra ÁTVR.
Ólíklegt er að Vínbúð opni á Fiskislóð 10 á Granda, samkvæmt aðstoðarforstjóra ÁTVR.
Auglýsing

ÁTVR hefur ekki náð að kom­ast að sam­komu­lagi um leigu­samn­ing við eig­endur atvinnu­hús­næðis að Fiski­slóð 10 á Grand. Það hús­næði var það eina sem sem upp­fyllti skil­yrði um stað­setn­ingu af þeim fjórum kostum sem boðnir voru fram eftir að ÁTVR aug­lýsti eftir leigu­hús­næði mið­svæðis í Reykja­vík í haust.

Sig­rún Ósk Sig­urð­ar­dóttir aðstoð­ar­for­stjóri ÁTVR stað­festir við Kjarn­ann að ekki hafi náðst sam­komu­lag við hús­eig­endur og segir að eins og staðan sé í dag sé „ólík­legt að það verði opnuð Vín­búð á Fiski­slóð 10“.

Það vakti athygli blaða­manns atvinnu­hús­næðið við Fiski­slóð, sem er í eigu Reita, hefur verið aug­lýst til leigu á fast­eigna­vef mbl.is og eflaust víð­ar.

„Það er rétt ályktað hjá þér að það hefur ekki náðst sam­komu­lag við hús­eig­endur á Fiski­slóð 10,“ segir Sig­rún Ósk í skrif­legu svari til blaða­manns, sem einnig spurði hvort í ljósi þessa væru ein­hver frek­ari tíð­indi af hús­næð­is­málum Vín­búð­ar­innar í mið­borg Reykja­vík­ur. Svo er ekki.

Fiskislóð 10 hýsti eitt sinn útibú Íslandsbanka. Mynd: Reitir

„Engin önnur tíð­indi en við höldum áfram að vinna með mál­ið,“ segir Sig­rún Ósk. Í haust ósk­uðu Rík­is­kaup fyrir hönd ÁTVR eftir því að taka á leigu um 400-600 fer­metra atvinnu­hús­næði undir nýja Vín­búð á svæði sem „af­markast af Snorra­braut, Hverf­is­götu, Tryggva­götu, Geirs­götu og til sjávar í norð­ur“, eins og það var orðað í aug­lýs­ingu á útboðsvefs hins opin­bera.

Fiski­slóð 10 var einn þeirra kosta sem boð­inn var fram, en einnig var boðið fram hús­næði við Hall­gerð­ar­götu 19-23, Hring­braut 119-121 og á Hall­veig­ar­stíg 1, en engin hinna þriggja stað­setn­ing­anna upp­fyllti skil­yrði ÁTVR um stað­setn­ingu undir nýja Vín­búð.

Sam­fara leit að nýju plássi undir Vín­búð mið­svæðis í borg­inni hefur ÁTVR verið með það til skoð­unar að loka mögu­lega Vín­búð­inni í Aust­ur­stræti. „Aust­­ur­­stræt­is­­búðin er óhent­ug. Hún er á tveimur hæð­um, við erum með lag­er­inn niðri, og svo er bara mjög erfitt um flutn­inga til og frá búð­inn­i,“ hafði Við­skipta­blaðið eftir Sig­rúnu Ósk í októ­ber í fyrra.

Borg­ar­stjóri hand­salar mið­borg­ar­búð við for­stjóra ÁTVR

Rúmum mán­uði fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sagði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri þó frá því að hann hefði átt fund með Ívari J. Arn­dal for­stjóra ÁTVR, þar sem hand­salað hefði verið að „að búðin í Aust­­ur­­stræti myndi ekki loka þrátt fyrir að samn­ingar næð­ust á Grand­an­um“.

Auglýsing

Borg­ar­stjór­inn sagði jafn­­framt frá því að for­­stjóri ÁTVR hefði upp­­lýst að ef Aust­­ur­­stræt­inu yrði lokað „yrði aug­lýst eftir 1-2 vel stað­­settum en minni versl­unum á mið­­borg­­ar­­svæð­inu til að koma í stað­inn“ og þá kom einnig fram í Twitt­er-­færslum Dags að ÁTVR hefði fengið skipu­lags­ráð­gjafa með sér í lið til að vinna að mörkun stefnu um stað­setn­ingu Vín­búða.

Ívar J. Arndal er forstjóri ÁTVR.

Nokkur umræða hafði áður skap­ast um mögu­legan flutn­ing Vín­búð­ar­innar úr hjarta mið­borg­ar­innar og ÁTVR hlotið nokkra gagn­rýni fyrir að gera það að skil­yrði fyrir stað­setn­ingu nýrrar búðar að þar væri nóg af bíla­stæðum sem mætti sér­merkja fyrir við­skipta­vini búð­ar­inn­ar.

Umræða um hið sama átti sér söm­u­­leiðis stað þegar Vín­­­búð­inni í Borg­­ar­­túni var lokað í fyrra og þá hafa fleiri ákvarð­­anir ÁTVR um stað­setn­ingar versl­ana sætt gagn­rýni á umliðnum árum, til dæmis stað­­setn­ing nýrrar versl­unar fyr­ir­tæk­is­ins í Kaup­­túni í Garða­bæ, en áður var ÁTVR með útibú á Garða­­torgi. Bæj­­­ar­yf­­ir­völd í Garðabæ furð­uðu sig á því að ÁTVR vildi ekki opna verslun mið­­svæðis í bæn­­um. Einnig mætti nefna brott­hvarf ÁTVR úr Firð­inum í Hafn­ar­firði og yfir í Hellu­hraun, sem er fremur bílmið­aður versl­un­ar­kjarni.

Það er Grand­inn svo einnig, en nú er sem áður segir „ólík­legt“ að ný Vín­búð opni þar og allt á huldu hvar ný Vín­búð á mið­borg­ar­svæð­inu verður stað­sett, ef af verð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent