Bankarnir hafa stórminnkað útlán til byggingarstarfsemi

Virði útlána íslensku banka til byggingarstarfsemi hefur minnkað um tugi milljarða króna á síðustu mánuðum. Nettó útlán bankanna í þessum flokki hafa verið neikvæð átta ársfjórðunga í röð.

Mikill samdráttur hefur orðið á lánveitingum til byggingarframkvæmda.
Mikill samdráttur hefur orðið á lánveitingum til byggingarframkvæmda.
Auglýsing

Útistand­andi banka­lán vegna bygg­ing­ar­starf­semi eða mann­virkja­gerðar hjá íslensku bönk­unum námu 155 millj­örðum króna í sept­em­ber, en þau hafa minnkað um 27 millj­arða króna frá byrjun síð­asta árs.

Bank­arnir drógu allir úr nýjum lánum í bygg­ing­ar­starf­semi á haust­mán­uðum 2019, en síðan þá hefur virði þeirra að frá­dregnum upp­greiðslum á gömlum lánum verið nei­kvætt átta árs­fjórð­unga í röð. Þetta kemur fram í hag­tölum Seðla­bank­ans um stöðu banka­kerf­is­ins.

Minnkunin mest hjá Lands­bank­anum

Lands­bank­inn, Íslands­banki og Kvika greina allir frá lána­stöðu sinni til bygg­ing­ar­starf­semi í árs­reikn­ingum þeirra, en sam­kvæmt því var hún 20 millj­örðum minni í lok síð­asta árs. Þar er minnkunin mest hjá Lands­bank­an­um, en virði útlána í flokknum þar minnk­aði um 16 millj­arða króna á milli ára. Minnkunin var aftur á móti nokkuð jöfn hjá Íslands­banka og Kviku, en báðir bank­arnir minnk­uðu útlánin sín til bygg­ing­ar­fram­kvæmda um 2 millj­arða króna hvor.

Auglýsing

Sams konar flokkun er ekki að finna í árs­reikn­ingum Arion banka, en þar eru útlán til fast­eigna­fé­laga og bygg­ing­ar­starf­semi sett í einn flokk. Virði útlána í þessum flokki minnk­aði líka á síð­asta ári um tvo millj­arða.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Seðlabankinn.

Drógu úr nýjum útlánum 2019

Ef ný útlán bank­anna að frá­dregnum upp­greiðslum til bygg­ing­ar­starf­semi eru skoðuð eftir árs­fjórð­ungum sést að mikil breyt­ing átti sér stað á þriðja fjórð­ungi árs­ins 2019. Þetta má sjá á mynd­inni hér að ofan, en sam­kvæmt henni hafa ný útlán hjá bönk­unum nú verið nei­kvæð í átta árs­fjórð­unga sam­fleytt.

Í við­tali við Frétta­blaðið í síð­ustu viku sagði Lands­bank­inn að mikil sala íbúða og marg­falt meiri eft­ir­spurn fyrstu kaup­enda gerði það að verkum að verk­takar gátu selt feliri íbúðir og þannig losað um fé til að halda áfram upp­bygg­ingu, sem bank­inn hafi stutt með lán­veit­ing­um. Bank­inn sagð­ist hafa þjónað þessum geira vel og muni áfram lána traustum verk­tökum í góð bygg­ing­ar­verk­efni. Sömu­leiðis sögð­ust Íslands­banki og Arion banki vera jákvæð í garð slíkrar lán­veit­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent