Dagur B.: „Á þetta bara að vera svona?“

„Fréttir og viðtöl af kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík er eins og sena úr Verbúðinni. Bókstaflega.“ Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, er ekki par hrif­inn af mörgum þeim fréttum og við­tölum af kaupum Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í Grinda­vík. Hann segir umfjöll­un­ina vera eins „sena úr Ver­búð­inni. Bók­staf­lega“.

Borg­ar­stjór­inn greinir frá þessum skoð­unum sínum í færslu á Face­book í morgun og lætur henni fylgja tengil á grein sem Þórður Gunn­ars­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi blaða­mað­ur, rit­ar. Fyr­ir­sögn grein­ar­innar er „Verð­lagn­ing Vísis í sam­runa inn í Síld­ar­vinnsl­una“ og í henni kemst Þórður að þeirri nið­ur­stöðu að for­svars­menn Vísis og Síld­ar­vinnsl­unnar hafi náð „lend­ingu um verð“ sem bæði taki til­lit til rekstr­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins sem sé tölu­vert lægra en upp­lausn­ar­virði afla­heim­ilda Vísis og verð­mætis afla­heim­ilda. „Ef til vill er hér komin upp­skrift að verð­lagn­ingu óskráðra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í þeirri sam­runa­hr­inu sem þarf að eiga sér stað á næstu árum, svo íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki geti stað­ist erlendri sam­keppni snún­ing.“

Auglýsing

Dagur er á öðru máli. „Með­fylgj­andi grein­ing á kaup­verð­inu bendir ein­dregið til þess að kaup­verðið taki EKKI mikið mið af rekstri eða rekstr­ar­ár­angri Vísis heldur skýrist fyrst og fremst af hlut­deild Vísis í þorsk­kvót­an­um. Einmitt, kvót­anum sem er eða á að heita þjóð­ar­eign.“

Hann skrifar að helstu fyr­ir­tæki lands­ins í sjáv­ar­út­vegi séu með öðrum orðum „að lýsa því yfir með verð­lagn­ing­unni að ekk­ert sé að marka orð og fyr­ir­heit stjórn­mál­anna um að inn­heimta eigi eðli­legan arð af auð­lind­inni þannig að þeir fjár­munir renni til þjóð­ar­inn­ar. Og að engar breyt­ingar á því séu lík­leg­ar. Á sama tíma horfum við upp á van­fjár­magnað heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­kerfi án þess að lausnir á því séu í sjón­máli. Er eðli­legt að við­brögð stjórn­mál­anna tak­mark­ist við umræðu um kvóta­þak og sam­keppn­is­sjón­ar­mið? Á þetta bara að vera svona?“

Einn fylgj­andi Dags á Face­book skrifar í ummælum við þessa færslu hans að fróð­legt verði að fylgj­ast með for­ystu Vinstri grænna í fram­hald­inu af þess­ari nýj­ustu sam­ein­ingu í sjáv­ar­út­vegi.

„Það er sjálf­sagt að fylgj­ast með for­ystu VG en ég minni á að for­ysta Fram­sókn­ar­flokks­ins boð­aði hækkun auð­linda­gjalda fyrr í vet­ur, ef mig mis­minnir ekki. Hvað er að frétta af því? Hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn neit­un­ar­vald í þessum efn­um? Eða er ekk­ert að marka orð­in. Í þessu skiptir líka máli að flokkar í stjórn­ar­and­stöðu tali skýrt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent