Efling fer ekki lengra með málið gegn Eldum rétt og Mönnum í vinnu

Stéttarfélagið Efling hyggst ekki styðja framhald dómsmála á hendur Eldum rétt og starfsmannaleigunni Mönnum í vinnu. Ábyrgðarsjóður launa hefur fallist á að greiða vangreidd laun fjögurra rúmenskra félagsmanna Eflingar.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar telur þetta óvænta vendingu.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar telur þetta óvænta vendingu.
Auglýsing

Stétt­ar­fé­lagið Efl­ing hyggst ekki styðja fram­hald dóms­mála á hendur Eldum rétt og starfs­manna­leig­unni Mönnum í vinnu, en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Efl­ingu féllst Ábyrgð­ar­sjóður launa á það í upp­hafi mán­aðar að gang­ast í ábyrgð fyrir van­greiddar launa­greiðslur til fjög­urra rúm­enskra fyrr­ver­andi starfs­manna starfs­manna­leig­unn­ar.

Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar telur að þetta sé óvænt vend­ing í mál­inu. „Það er sann­ar­lega ánægju­legt að Ábyrð­ar­sjóður launa hafi á síð­ustu stundu stigið inn og við­ur­kennt rétt­mæti þeirra krafna sem launa­greið­endur kusu að slást um við lág­launa­fólk fyrir dómi. Þannig er félags­mönnum okkar bættur skaði og því eru að okkar mati ekki sömu for­sendur fyrir dóms­máli,“ er haft eftir Sól­veigu Önnu.

Um er að ræða upp­hæðir á bil­inu 120-195 þús­und í til­felli hvers þeirra fjög­urra félags­manna Efl­ingar sem í hlut áttu. Hafa greiðsl­urnar verið lagðar inn á reikn­inga þeirra.

„Ágrein­ingur dóms­máls­ins laut einkum að því hvort Mönnum í vinnu hefði verið heim­ilt að draga að eigin ákvörðun ýmsa kostn­að­ar­liði frá launum starfs­mann­anna og lýsa því þannig yfir að launin væru greidd með skulda­jöfn­un,“ er haft eftir Ragn­ari Aðal­steins­syni lög­manni Rúm­en­anna fjög­urra í til­kynn­ingu Efl­ing­ar.

„Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur lengi barist gegn ein­hliða frá­drætti af verka­launum og voru um það sett lög í byrjun síð­ustu ald­ar. Með þeirri ákvörðun Ábyrgða­sjóðs launa að fall­ast á að greiða laun starfs­mann­anna án frá­dráttar stígur sjóð­ur­inn mik­il­vægt skref í þá átt að vernda verka­laun starfs­manna gegn ein­hliða skulda­jöfn­uði atvinnu­rek­and­ans,“ er enn fremur haft eftir Ragn­ari.

Eins og Kjarn­inn sagði frá í síð­asta mán­uði var kröfum rúm­ensku starfs­mann­anna á hendur starfs­manna­leig­unni vísað frá Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur. Nið­­ur­­staða dóms­ins var á þá leið að þar sem gjald­­þrota­­skiptum á búi starfs­­manna­­leig­unnar hafi lokið 11. sept­­em­ber 2020 yrði engum frek­­ari kröfum komið fram gagn­vart félag­inu eftir það tíma­­mark, að minnsta kosti ekki á meðan þess sé ekki kraf­ist að skiptin yrðu end­­ur­­upp­­­tek­in.

Fram kom í dómnum að stefn­end­urnir hefðu ekki upp­­lýst um afstöðu skipta­­stjóra til krafna þeirra í bú starfs­manna­leig­unn­ar, þrátt fyrir að skorað hafi verið á þá um að gera það. Einnig kom fram í nið­­ur­­stöðu hér­­aðs­­dóms að fram­­burður starfs­mann­anna varð­andi greiðslur til þeirra hefði verið ótrú­verð­ugur og í and­­stöðu við gögn sem þeir hefðu sjálfir lagt fram í mál­inu. Þá hafi frá­­­dráttur af launum starfs­­mann­anna verið í sam­ræmi við ráðn­­ing­­ar­­samn­inga þeirra.

Auglýsing

Eldum rétt var stefnt í mál­inu sem not­enda­­fyr­ir­tæki starfs­­manna­­leig­unn­­ar, en þetta var í fyrsta sinn sem látið hefur verið reyna á nýlegt ákvæði um keðju­á­­byrgð í lögum um starfs­­manna­­leigur fyrir dómi. Þar sem kröfum starfs­­mann­anna fjög­­urra á hendur starfs­­manna­­leig­unni var vísað frá dómi var mál­inu einnig vísað frá gagn­vart Eldum rétt.

Sól­veig Anna skorar á Eldum rétt

Eldum rétt, sem selur til­­­búna mat­­ar­­skammta sem fólk getur eldað heima hjá sér, hefur lengi sagt að fyr­ir­tækið hafi verið dregið inn í þetta dóms­­mál að ósekju. Fram kom eftir að dómur hér­aðs­dóms féll að fyr­ir­tækið skoð­aði að leita réttar síns gagn­vart stétt­ar­fé­lag­inu Efl­ingu vegna ummæla sem for­svars­menn þess hafa látið falla á opin­berum vett­vangi.

For­maður Efl­ingar hefur hins talið að Eldum rétt eigi að taka ábyrgð á mál­inu. Í til­kynn­ingu Efl­ingar er haft eftir henni að hún telji það miður „að þessi kostn­aður lendi á skatt­greið­end­um“ og skorar hún á Eldum rétt um að „axla ábyrgð og end­ur­greiða Ábyrgð­ar­sjóði þessar fjár­hæð­ir.“

Fram kemur í til­kynn­ingu Efl­ingar að stétt­ar­fé­lagið og lög­manns­stofan Réttur hafi stutt 20 félags­menn Efl­ingar til að leggja fram kærur til Hér­aðs­sak­sókn­ara í ágúst 2019 og apríl 2020 vegna grun­aðra brota af hálfu Manna í vinnu. Rann­sókn þess­ara mála er sam­kvæmt til­kynn­ingu Efl­ingar enn yfir­stand­andi hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent