Efling gerir kröfu á Samtök atvinnulífsins um 167 þúsund króna hækkanir á öll laun til 2025

Samninganefnd Eflingar vill að öll mánaðarlaun hækki um 167 þúsund krónur í áföngum, í samningum sem byggi á forskrift Lífskjarasamningsins og verði í gildi til ársins 2025. Kröfugerð stéttarfélagsins fyrir komandi kjaraviðræður hefur verið birt.

Samninganefnd Eflingar afhenti Samtökum atvinnulífsins í dag kröfugerð sína fyrir komandi kjaraviðræður.
Samninganefnd Eflingar afhenti Samtökum atvinnulífsins í dag kröfugerð sína fyrir komandi kjaraviðræður.
Auglýsing

Efl­ing - stétt­ar­fé­lag vill semja við Sam­tök atvinnu­lífs­ins um að öll mán­að­ar­laun hækki um sam­tals 167 þús­und krónur í áföngum á þriggja ára samn­ings­tíma nýrra kjara­samn­inga, sam­kvæmt því sem fram kemur í kröfu­gerð stétt­ar­fé­lags­ins sem send hefur verið á fjöl­miðla eftir að hafa verið afhent full­trúum SA fyrr í dag.

Samn­inga­nefnd Efl­ingar fer í kröfu­gerð­inni fram á samn­ing sem gildi til 1. nóv­em­ber 2025 þar sem „byggt verði á for­sendum og árangri Lífs­kjara­samn­ings­ins“. Farið er fram á að þrjár árlegar launa­hækk­anir verði, auk sér­stakrar fram­færslu­upp­bótar sem nemi 30 þús­und krón­um.

Samn­inga­nefndin vill einnig að launa­lið­ur­inn verði með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði, þess efnis að hann beri að end­ur­skoða ef verð­bólga fari meira en einu pró­sentu­stigi yfir þær spár sem byggt er á.

Í kröfu­gerð Efl­ingar segir að krónu­tölu­hækk­anir séu öflug leið til að hækka lægstu laun sér­stak­lega, að heim­ili lág­launa­fólks hafi búið við langvar­andi halla­rekstur og að sú krónu­tölu­hækkun sem samið verði um þurfi að „vinda ofan af því óþol­andi ástandi að ráð­stöf­un­ar­tekjur lág­launa­fólks séu undir fram­færslu­við­mið­u­m“.

30 daga orlof fyrir alla

Í kröfu­gerð Efl­ingar er einnig gerð krafa um lengra orlof, og að orlof verði 30 dagar bæði á almennum vinnu­mark­aði og hjá hinu opin­bera. Einnig segir að meta þurfi ábyrgð og álag í starfi til launa og vísað til þess að margir Efl­ing­ar­fé­lagar þurfi að sætta sig við fyr­ir­vara­lausa aukn­ingu vinnu­á­lags á dögum þegar und­ir­mönnun beri að dyr­um.

Samn­inga­nefnd Efl­ingar vill einnig að rætt verði af fullri alvöru um mögu­leika til stytt­ingar vinnu­viku Efl­ing­ar­fé­laga á almenna vinnu­mark­aðn­um, án þess að afleið­ingin verði aukið álag eða skerð­ing á nauð­syn­legri hvíld í vinnu.

Auglýsing

Einnig eru settar fram kröfur um aðgerðir vegna kjara­samn­ings­brota. „Tryggja þarf strangar afleið­ingar fyrir launa­þjófn­að. Stór­bæta þarf fram­fylgd þegar umsam­inna rétt­inda í samn­ingum svo sem lág­marks­fyr­ir­vara um breyt­ingar á vak­ta­plön­um, gerð ráðn­ing­ar­samn­inga og starfs­lýs­inga sem rýma sam­an, hvíld­ar­tíma bíl­stjóra og við­un­andi aðbúnað í gist­ingu á ferðum um land­ið,“ segir í kröfu­gerð Efl­ing­ar.

Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar segir í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu að verk­efni næstu þriggja ára sé skýrt í huga Efl­ing­ar­fólks.

„Við ætlum að halda áfram á þeirri braut að ná fram kjara­bótum fyrir félags­fólk Efl­ing­ar. Það þarf að verja launin okkar gegn verð­hækk­unum á lífs­nauð­synjum og það þarf að vinda ofan af halla­rekstri á heim­ilum lág­launa­fólks. Leið krónu­tölu­hækk­ana hefur sannað sig sem besta leiðin að þessum mark­mið­um. Algjör ein­ing var meðal samn­inga­nefndar Efl­ing­ar­fé­laga um kröfu­gerð­ina,“ er haft eftir Sól­veigu Önnu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent