Eigum að flytja inn þekkingarstarfsmenn

Sigurlína V. Ingvarsdóttir vill laða þekkingarstarfsmenn hingað til lands. „Það er gott að búa hérna, samfélagið er öruggt og ég held að þarna séu sóknarfæri fyrir þekkingargeirann, að ná sér í þetta starfsfólk.“

Sigurlína V. Ingvarsdóttir situr í stjórnum smærri og stærri fyrirtækja og segir mikilvægt að fá fjölbreyttar raddir að borðinu. Hún vill að Ísland nýti tækifærin sem felast í núverandi efnahagsástandi og laði til sín þekkingarstarfsmenn erlendis frá.
Sigurlína V. Ingvarsdóttir situr í stjórnum smærri og stærri fyrirtækja og segir mikilvægt að fá fjölbreyttar raddir að borðinu. Hún vill að Ísland nýti tækifærin sem felast í núverandi efnahagsástandi og laði til sín þekkingarstarfsmenn erlendis frá.
Auglýsing

Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir er nýlega komin heim eftir 14 ára far­sælan feril í sem fram­leið­andi tölvu­leikja í Sví­þjóð, Kanada og Banda­ríkj­un­um. Hún kemur inn í íslenskt við­skipta­líf með víð­tæka stjórn­un­ar­reynslu og segir að nú sé lag að laða hingað til lands þekk­ing­ar­starfs­menn.

Sig­­ur­lína er í við­tali í ára­­móta­­blaði Vís­bend­ing­ar. Í blað­inu er sjónum sér­­stak­­lega beint að fjöl­breytni, jafn­­rétti og því hvernig unnt er að nýta hæfni og krafta breið­­ari hóps í við­­skipta­líf­inu, ekki síst í stjórnum og stjórn­­un­­ar­­stöð­um, en ekki bara hæfni og krafta þeirra sem eru líkir þeim sem stýra fyr­­ir.

Vara­samt að of þröngir eða eins­leitir hópar taki stórar ákvarð­anir

Hún bendir á í við­tal­inu að það sé vara­­samt að of þröngir eða eins­­leitir hópar taki stórar ákvarð­an­ir, enda byggir ákvarð­­anir ein­stak­l­inga ávallt á reynslu þeirra sjálfra að ein­hverju leyti. Fólk geti ekki end­­ur­­speglað reynslu sem það hefur ekki. Þá segir hún mik­il­vægt að nýta þá stöðu sem skap­­ast hefur með upp­­­sögnum stórra tækn­i­­fyr­ir­tækja á hæfu starfs­­fólki. Tæki­­færi geti falist í því fyrir Ísland að laða þekk­ing­­ar­­starfs­­menn hingað til lands.

Auglýsing

Áskorun sem stjórn­ar­menn og aðrir leið­togar í við­skipta­líf­inu standi frammi fyrir telur hún tví­þætta. „Ögrunin fyrir stjórnir fyr­ir­tækja er hvernig sinnum við sam­fé­lags­legri ábyrgð gagn­vart neyt­endum sam­hliða því að nýta þau tæki­færi sem sér­staða Íslands veit­ir. Ég held að við þurfum að vera ann­ars vegar með­vituð um áskor­an­irnar en líka reyna að sjá tæki­færi í þessu,“ segir Sig­ur­lína.

Hún nefnir sem dæmi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem reiða sig mikið á þekk­ing­ar­starfs­menn.„Nú er það þannig að stór­fyr­ir­tæki á til dæmis tækni­mark­aði, fyr­ir­tæki eins og Face­book og Goog­le, eru mörg hver búin að setja ráðn­ing­ar­stopp vegna kröfu um aukna arð­semi eða jafn­vel segja upp fólki. Tækni­fyr­ir­tæki sem hafa verið með þús­undir starfs­manna hafa verið að skera tals­vert nið­ur. Þarna er hópur af fólki, mjög hæfu fólki, sem kannski hefur misst vinn­una og það er þörf fyrir þetta vinnu­afl á Ísland­i.“

Sókn­ar­færi fyrir þekk­ing­ar­geir­ann

Ísland sem sam­fé­lag hafi upp á ótrú­lega margt að bjóða fyrir þennan hóp að mati Sig­ur­línu. „Það er gott að búa hérna, sam­fé­lagið er öruggt og ég held að þarna séu sókn­ar­færi fyrir þekk­ing­ar­geirann, að ná sér í þetta starfs­fólk. Spennan á þessum mark­aði, hámennt­uðu sér­fræð­ing­anna og for­rit­ara, hún hefur verið mikil mjög lengi. Nú þegar þessi stóru fyr­ir­tæki og mörg smærri eru eru að losa sig við starfs­fólk þá er lag fyrir okkur að sækja þetta fólk.“

Mikil sam­keppni er um starfs­fólk í tölvu­leikja­geir­anum að sögn Sig­ur­línu, geira sem hún þekkir best. „Það hefur þurft að sækja mikið af sér­fræð­ingum og koma með þekk­ingu þeirra til Íslands. Auð­vitað hefur orðið til líka mjög mikið af íslenskum sér­fræð­ingum en það er líka bara gott fyrir öll sam­fé­lög að fá inn nýtt blóð. Fá inn fólk sem kemur úr öðru umhverfi, frá öðrum fyr­ir­tækj­um, hugsar öðru­vísi og kemur með ferskar hug­mynd­ir.“

„Hér er nóg pláss“

Hún bendir á að hingað komi margt fólk í þjón­ustu­störf, til dæmis í ferða­þjón­ustu, en að það sé gott fyrir sam­fé­lagið að sækja líka fólk í fleiri geira.

„Hér er nóg pláss, það er kannski ekki eins mikið fram­boð af hús­næði eins og þyrfti, en að því gefnu að okkur lán­ist að byggja nóg þá eigum við að bjóða fólk alls staðar að vel­komið hing­að. Hér er virki­lega gott að búa, það er dásam­legt að vera með börn á Íslandi, þau geta verið frjáls. Ég hefði aldrei gefið dóttur minni strætókort og leyft henni að vera frjáls í Banda­ríkj­un­um. Það að vera kjörkuð og óhrædd við að láta á sig reyna, það kemur úr umhverfi okkar og það gerir það að verkum að börnin okkar verða sjálf­stæð og fær um að spreyta sig. Ég held að það sé dýr­mætt og við þurfum að gefa fleirum tæki­færi á að upp­lifa það að búa í svona umhverf­i.“

Við­talið við Sig­ur­línu má lesa í heild sinni í ára­móta­blaði Vís­bend­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent