Eimskip viðurkennir alvarleg samkeppnislagabrot og fær 1,5 milljarða sekt

Eimskip hefur viðurkennt að hafa viðhaft ólögmætt samráð við Samskip árum saman og greiðir 1,5 milljarð króna í sekt vegna máls sem hefur verið til rannsóknar frá 2013. Samskip eru enn til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Eimskip viðurkennir brot sín og greiðir einn og hálfan milljarð í sekt.
Eimskip viðurkennir brot sín og greiðir einn og hálfan milljarð í sekt.
Auglýsing

Eim­skip hefur gert sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um greiðslu 1,5 millj­arða króna stjórn­valds­sektar vegna alvar­legra brota gegn sam­keppn­is­lögum og EES-­samn­ingum sem framin voru í sam­ráði við Sam­skip, aðal­lega á árunum 2008 til 2013.

Fyr­ir­tækið við­ur­kennir einnig að hafa við­haft ólög­mætt sam­ráð við Sam­skip áður en stór­tækara sam­ráð á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja hófst sum­arið 2008.

Brot félag­anna tveggja gegn sam­keppn­is­lögum hafa verið til rann­sóknar árum sam­an, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið sagði frá því að Eim­skip hefði leitað eftir sáttum í mál­inu fyrr í þessum mán­uði. Tekið er fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­litnu að Sam­skip sé enn til rann­sóknar vegna þess­ara mála.

Eim­skip við­ur­kennir að hafa brotið gegn lögum með eft­ir­far­andi hætti:

  • Sam­ráð við Sam­skip á síð­ari hluta árs­ins 2008 um breyt­ingar á sigl­inga­kerfum og tak­mörkun á flutn­ings­getu í sjó­flutn­ingum til og frá Íslandi.
  • Sam­ráð við Sam­skip um skipt­ingu á mörk­uðum eftir stærri við­skipta­vinum í sjó- og land­flutn­ing­um. Sam­ráð þetta var umfangs­minna á loka­ári rann­sókn­ar­tíma­bils­ins (á árinu 2013).
  • Sam­ráð við Sam­skip um álagn­ingu gjalda og afslátt­ar­kjör í flutn­inga­þjón­ustu og um miðlun á mik­il­vægum verð- og við­skipta­upp­lýs­ing­um. Sam­ráð þetta var umfangs­minna á loka­ári rann­sókn­ar­tíma­bils­ins (á árinu 2013).
  • Sam­ráð við Sam­skip um land­flutn­inga­þjón­ustu á flutn­inga­leiðum á Íslandi og skipt­ingu á mörk­uðum á til­teknum flutn­inga­leið­um.
  • Sam­ráð við Sam­skip um sjó­flutn­inga milli Íslands og ann­arra Evr­ópu­landa, og aðrar aðgerðir sem mið­uðu að því að raska sam­keppni í flutn­ings­þjón­ustu.
  • Sam­ráð við Sam­skip um sjó­flutn­inga milli Íslands og Norð­ur­-Am­er­íku þegar ekki var í gildi und­an­þága frá 10. gr. sam­keppn­islaga.

Einnig við­ur­kennir Eim­skip sem áður sagði að félagið hafi haft ólög­mætt sam­ráð við Sam­skip fyrir fund sem fór fram 6. júní 2008, en það sam­ráð ku hafa verið umfangs­minna en sam­ráðið sem hófst eftir umræddan fund. Að auki við­ur­kennir Eim­skip að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum með því að hafa ekki veitt nauð­syn­legar eða réttar upp­lýs­ingar eða afhent gögn í þágu rann­sóknar máls­ins, en félagið hefur á fyrri stigum rann­sóknar máls­ins neitað því að hafa gerst brot­legt við lög.

Skuld­binda sig til þess að vinna ekki frekar með Sam­skip

Í sátt­inni felst að Eim­skip skuld­bindur sig til að grípa til aðgerða til að vinna gegn frek­ari brotum og efla sam­keppni.

Samskip er enn til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.

„Í þessu felst m.a. að Eim­skip mun tryggja að ávallt sé fyrir hendi virkt innra eft­ir­lit og fræðsla til þess að koma í veg fyrir að brot á sam­keppn­is­lögum end­ur­taki sig. Í því sam­bandi mun Eim­skip sér­stak­lega gæta að því að stjórn­endum og helstu starfs­mönnum sé gerð grein fyrir ríkum kröfum um sam­keppn­is­legt sjálf­stæði fyr­ir­tækja sem starfa á fákeppn­is­mörk­uðum og ströngu banni við hvers konar sam­skiptum við stjórn­ar­menn, stjórn­endur eða aðra starfs­menn keppi­nauta eða mögu­lega keppi­nauta sem eru til þess fallin að raska sam­keppni.

Auglýsing

Eim­skip skuld­bindur sig til þess að yfir­fara alla samn­inga sína við önnur flutn­inga­fyr­ir­tæki með til­liti til sam­keppn­islaga. Jafn­framt skuld­bindur Eim­skip sig til þess að hætta öllu við­skipta­legu sam­starfi við Sam­skip. Í þessu felst einnig að Eim­skip skuld­bindur sig til þess að eiga ekki í sam­starfi við önnur fyr­ir­tæki í hvers konar flutn­inga­þjón­ustu ef Sam­skip á einnig í sam­starfi við við­kom­andi fyr­ir­tæki. Þetta gildir ekki ef Eim­skip getur sýnt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu fram á að eðli við­kom­andi sam­starfs sé með þeim hætti að ekki sé hætta á röskun á sam­keppni milli Eim­skips og Sam­skipa,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Segja nýja stjórn­ar­hætti hafa verið tekna upp

Í til­kynn­ingu frá Eim­skip segir að félagið leggi áherslu á að það hafi átt sér stað grund­vall­ar­breyt­ingar í rekstri félags­ins á und­an­förnum árum, nýir stjórn­ar­hættir hafa verið teknir upp, ný stjórn og stjórn­endur hafa komið til starfa og nýir aðal­eig­endur fari nú fyrir félag­inu.

„Það er mik­il­vægur áfangi að ljúka nú með sátt sam­keppn­is­mál­inu sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur haft til rann­sóknar og varðar tíma­bilið 2008-2013 þó vissu­lega séu þetta þung skref að taka. Frá þeim tíma hefur orðið grund­vall­ar­breyt­ing á rekstri félags­ins, nýir stjórn­endur tekið til starfa, nýir eig­endur komið að félag­inu og stjórn­ar­hættir bætt­ir. Liður í þessum breyt­ingum og þeirri veg­ferð sem við erum á var að ná fram sátt í þessu máli og nú hefur óvissu sem því fylgdi verið eytt. Þrátt fyrir nei­kvæðu fjár­hags­legu áhrifin af sekt­inni var það mat stjórnar Eim­skips að best væri fyrir heild­ar­hags­muni félags­ins að ljúka þessu gamla máli með sátt,“ er haft eftir Vil­helm Má Þor­steins­syni for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent