Evrópsk knattspyrnusambönd styðja Blatter ekki áfram sem forseta FIFA

blatter.jpg
Auglýsing

Michel Plat­ini, for­seti knatt­spyrnu­sam­bands Evr­ópu, UEFA, segir að mik­ill meiri­hluti evr­ópskra knatt­spyrnu­sam­banda muni ekki styðja Sepp Blatt­er, núver­andi for­seta Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins, FIFA, í for­seta­kjör­inu sem á að fara fram á morg­un. Þess í stað muni sam­böndin styðja jórdanska prins­inn Ali sem for­seta.

Öll 54 knatt­spyrnu­sam­böndin í Evr­ópu, þar á meðal full­trúar KSÍ, fund­uðu í Zurich í Sviss í dag til að ræða spill­ing­ar­málin sem komin eru upp á yfir­borð­ið. Í gær voru níu hátt­settir menn innan FIFA hand­teknir og ákærðir í Banda­ríkj­unum fyrir mútu­þægni, pen­inga­þvætti og fleira. Á morgun á að hefj­ast aðal­fundur sam­bands­ins þar sem Blatter er í fram­boði til áfram­hald­andi setu sem for­seti, gegn Ali.

Plat­ini ræddi við fjöl­miðla rétt í þessu. Hann sagði að nú væri nóg kom­ið. „Fólk vill ekki Sepp Blatter lengur og ég vil hann ekki lengur held­ur. Ég hef alltaf sagt að við viljum að FIFA sé sterkt en FIFA er ekki sterkt leng­ur. Ég er enn að reyna að sann­færa nokkur evr­ópsk knatt­spyrnu­sam­bönd sem eru ekki alveg sann­færð,“ sagði hann, en tók ekki fram hvaða knatt­spyrnu­sam­bönd það væru.

Auglýsing

Plat­ini sagð­ist hafa talað við Sepp Blatter um mál­ið. „Ég sagði honum að fara, að stíga til hlið­ar, vegna þess að þú svertir ímynd FIFA. Það er ekki auð­velt að segja vini að hann verði að fara en það er þannig sem sagan fer. Ég segi þetta með trega, með tár í aug­un­um. Það hafa verið of margir skandal­ar.“ Blatter hafi hins vegar sagt að það væri of seint að hætta, það væri of stutt í að þing sam­bands­ins hæf­ist.

Á fundi UEFA í dag til­kynnti David Gill, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Manchester United, að hann myndi segja af sér sem vara­for­seti FIFA ef Sepp Blatter ber sigur úr býtum í kosn­ing­unum á morg­un. Hann á að verða vara­for­seti frá og með morg­un­deg­in­um, en hann er í stjórn bæði Evr­ópska knatt­spyrnu­sam­bands­ins og þess breska.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None